Ægir - 15.03.1957, Side 16
66
ÆGIR
Kql res Qn 5 jO*
Ovemettet kon forlenqes mea
inntil SO masker
Posens tenqde mntil
!0 meter n
ReketráL
Stenqeqarn
forbudt
Posens OmkredS mniil 500 mazkor
Stentelne fra óre til ore mntil ihmeter
Maokene ikke stórre enn 36 omtar pr a/en nyt net
samskonar veiðarfæri og tíðkast hefur
áður en lögin voru sett.
Kæra þessi barst venjulega boðleið til
sjávarútvegsmálaráðuneytisins, sem að
vanda leitaði umsagnar Fiskifélags ís-
lands um málið.
f tilefni af því var leitað upplýsinga
frá Noregi m. a. um gerð þeirra veiðar-
færa, sem notuð eru til rækjuveíða þar í
landi og þær reglur, sem þar gilda um
rækjuveiðar. Eru veiðarnar að sjálfsögðu
leyfðar þar innan landhelgi, enda fara
þær að mestu fram á fjörðum inni eða
nær landi og veiðarfærið er í öllum meg-
inatriðum svipað því, sem hér tíðkast. Til
frekari skýringar birtist hér mynd af
einni slíkri vörpu, sem nefna mætti
„venjulega kampalampavörpu" þar í
landi og getið hefur af sér þá vörpu, sem
hér hefur verið og er notuð.
Kæra sú, sem hér um ræðir, byggist
því á misskilningi.
Þá er annað atriði, sem fram er sett
til stuðnings kærunni, að rækjuveiðarnar
tortími öðru fiskungviði og fæli aðra
nytjafiska af þeim slóðum, þar sem þær
eru stundaðar. Um þetta vil ég sem
minnst segja á þessu stigi. Lagt hefur
verið til af Fiskifélaginu, að rannsókn
vísindamanna verði látin fram fara á
þessu, ef slík rannsókn mætti leiða eitt-
hvað í ljós um áhrif rækjuveiðanna á aðr-
ar fiskveiðar eða á háttu annarra fiska á
þeim slóðum, þar sem þær eru stundaðar.
Fyrr en niðurstaða af slíkri rannsókn
liggur fyrir er alls
ekki tímabært að ræða
það mál, hvort nauð-
syn sé einhverra sér-
stakra ráðstafana
vegna rækjuveiðanna.
Þó má benda á, að
í nágrannalöndum okk-
ar, þar sem rækjuveið-
ar eru stundaðar í stór-
um stíl, hefur ekki ver-
ið talið, að af þeim
stafaði nein sú hætta
fyrir aðrar fiskveiðar, að þörf væri sér-
stakra aðgerða þessvegna.
Þá er loks ekki unnt að komast framhjá
því, þegar rætt er mál sem þetta, að áður
en gerðar yrðu einhverjar þær ráðstaf-
anir, sem yrðu til þess að torvelda rækju-
veiðarnar eða e. t. v. að þær legðust með
öllu niður, yrði að fara fram nákvæm at-
hugun á því, hvaða efnahagslegar afleið-
ingar slíkt hefði í för með sér og væri
þá margt, sem yrði að meta og vega í því
sambandi. D. Ó.
Erlendar fréttir
L_^.-_.-_______________.-_.-.-.-.____I
Frá Bandaríkjunum
Tilraunir með miðsævisvörpu.
Mikill áhugi ríkir nú á meðal fiskveiði-
þjóða víða um heim á fiskveiðum með
miðsævisvörpu og fara fram tilraunir í
því skyni.
„Commercial Fisheries Review“, sem
gefið er út af þeirri deild bandaríska inn-
anríkisráðuneytisins, sem fer með fiski-
mál, greinir nýlega frá slíkum tilraunum,
sem gerðar voru í september s.l. út af
ströndum ríkisins Maine.
Varpan, sem var notuð, var kanadísk,
svipuð að gerð og þær, sem notaðar hafa