Ægir

Árgangur

Ægir - 15.10.1958, Blaðsíða 3

Ægir - 15.10.1958, Blaðsíða 3
ÆGI R RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 51. árg. Reykjavík, 15. október 1958 Nr. 18. IJtgerö og aflabrögð VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR í september. Síldveiði í reknet hefur verið óvenju góð í september, undan ísafjarðardjúpi. Þó var síldaraflinn misjafn og suma'daga sáralitið. Síðustu daga mánaðarins hvarf síldin af miðunum, og eru nú allir bátar hér hættir veiðum, aðkomubátarnir farnir. Þorskveiðar voru sama og ekkert stundaðar. — Þó voru netjaveiðar reynd- ar með góðum árangri af bát úr Hnífsdal og tveimur smábátum í Grunnavík. Patreksfjörður. Togaraaflinn þar var mjög góður, karfaveiðar stundaðar sem áður við Nýfundnaland. — Bv. Gylfi fékk 785 lestir í tveimur veiðiferðum, Ólafur Jóhannesson fékk 651 lest einnig í tveim- ur ferðum. Vb. Andri hefur stundað rek- netjaveiðar syðra og hafði fengið um 600 tn. alls. Smábátar voru ekki teljandi að veiðum. Var bæði stormasamt og rýr afli. Bíldudalur. Vb. Sigurður Stefánsson hætti veiðum í byrjun sept., en vb. Geys- ir hélt úti til 20. sept. — Tveir bátar hafa stundað rækjuveiðar og aflað vel. Þingeyri. Færaveiðar voru stopult stundaðar í mánuðinum, en allgóður afli, er farið var til fiskjar. Vb. Þorbjörn var á reknetjaveiðum, lagði upp á Suðureyri. Hafði fengið nálega 2000 tn. um mán- aðamótin frá því um miðjan ágúst, og er það í bezta lagi á reknetjabátum. Flateyri. Togararnir fóru tvær veiði- ferðir hvor, afli þeirra afar rýr. Guð- mundur Júní fékk 205 lestir, Gyllir ein- ungis 146 lestir. Suðureyri. Stærri bátarnir, fimm, voru á reknetjaveiðum. Einn þeirra, Hallvarð- ur, hætti um miðjan mánuðinn, hinir héldu úti til mánaðarloka. Afli þeirra sæmilegur, stundum góður. Aflahæstur er vb. Friðbert Guðmundsson með 2050 tunnur. Hann byrjaði veiðarnar í byrjun ágúst. Hinir bátarnir, er byrjuðu í önd- verðum sept., eru með milli 1300 og 1400 tn. Saltað var á Suðureyri rúmar 4000 tunnur, og auk þess 550 tn. af herpi- nótasíld í sumar. — Nokkrir aðkomu- bátar lögðu og síld á land á Suðureyri. Þrír smáir þilfarsbátar stunduðu þorsk- veiðar með línu. Afli þeirra oftast góður, en sjaldgjöfult. Mest fékk vb. Svanur (5 lesta) 25 lestir með 3—4 mönnum. Bolungarvík. Smábátar, 12—14 1. voru þar að veiðum fram að miðjum septem- ber, en hættu þá með öllu, enda aflinn oftast rýr og mikil vinna í landi við mót- töku og söltun síldar. Flest voru farnar 12 sjóferðir. Mestur afli einungis um 11 lestir, með þremur mönnum. — Stærri bátarnir úr Bolungarvík stunduðu ekkert

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.