Ægir - 15.10.1958, Blaðsíða 10
352
ÆGIR
Fyrst var gerð tilraun með endurbætt-
an viðtökumagnara venjulegs Simrad
mælis, og mátti með þeirri endurbót finna
einstaka þorska og ýsur allt niður á 200
mtr. dýpi. Því næst voru ýmsar gerðir
botnstykkja reyndar og náðist mjög góð-
ur árangur með botnstykki, sem hafði
6,5° langskips og 22° þverskips geisla-
vídd. Með því fengust endurvörp frá
200—400 mtr. dýpi áberandi betur en
áður.
Þetta tæki hefur nú verið reynt á mörg-
um rannsóknarferðum G. O Sars í N,-
norska strandsjónum og í Barentshafi og
með góðum árangri, m. a. í sumum til-
fellum til að þekkja þorsk og ýsu frá
öðrum fiski.
Mynd nr. 25 sýnir lóðningar við merk-
ingu á þorski og ýsu. Fyrst er skipið
kyrrt, meðan á merkingu stendur. Nærri
lóðréttu lóðningarnar (strikin) til vinstri,
eru af einstaka fiski á niðurleið eftir
merkingu. Á um 100 mtr. dýpi virðist
hann stoppa, e. t. v. til að venjast aukn-
um þrýstingi. Nokkru til hægri á mynd-
inni sézt þegar vörpunni er slakað niður,
en lengst til hægri er skipið komið á ferð
og fisklóðningarnar orðnar að litlum
doppum eins og venjulega.
Meiri erfiðleikum var bundið að fá
lóðningar af fiski, sem var þétt við botn.
Tilraunum var haldið áfram og í apríl
1957 hafði náðst árangur eins og mynd
26 sýnir. Þar eru samtímis lóðningar með
venjulegum mæli og mæli með „botn-
loka“ (bottom blocking), eða „hvítu lín-
unni“ svokölluðu, þegar skipið var við
togveiðar á Barentshafi. Botninn kemur
fram fyrst sem þunn lína, en þegar fisk-
ur er undir, þá þykknar línan upp á við.
Það virðist sennilegt. að „hvíta línan“
muni reynast mjög gagnlegt fiskimönn-
um. Auk þess gæti þessi nýjung gefið upp-
lýsingar um fiskimagn í miðsjávartorf-
um, t. d. síld.
Síðasta erindi, sem fjallar um fiski-
leitartækin, er eftir Dr. Fahrentholz, for-
stjóra Behm-Echolot verksmiðjunnar í
Kiel. Þar segir hann frá dýptarmæli, er
verksmiðja hans framleiðir, sem m. a. á
að sýna fisk við botninn. Er þar byggt á
svipuðum atriðum og hjá öðrum fram-
leiðendum um „hvítu línuna“. þ. e. að
endurvarp botnsins, sem er mun sterkara
en fiskilóðningin, er látið loka viðtækinu
örstuttum tíma eftir að það nær til skips-
ins, en mjó svört rönd (botndýpið) mynd-
ast áður en „hvíta línan“ byrjar.
Mynd nr. 25. Lóöning tekin meðan sleppt var merktum fiski frá „G. O. Sars“, og var byrjað að
toga á ný. í Barentshafi í marz 1956.