Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.10.1958, Qupperneq 4

Ægir - 15.10.1958, Qupperneq 4
346 ÆGIR veiðar, en margt aðkomubáta lagði þar á land síld til söltunar og í frystingu. Var reknetj aaflinn mjög góður, oft um og yf- ir 100 tn. í lögn. Saltað hafði verið í um 5000 tn., en um 6000 tn. voru frystar til beitu og útflutnings. Hnífsdalur. Vb. Rán, hinn nýi vélbátur þeirra Hnífsdæla hóf þorskanetjaveiðar hinn 13. september og aflaði mjög vel. Fékk báturinn 94 lestir til mánaðarloka. Vb. Mímir var á reknetjaveiðum og fékk alls um 800 tn. ísafjarðarbær. Fimm stærstu bátar bæj- arins voru á reknetjaveiðum, öfluðu vel með köflum og heildarveiðin má teljast góð. — Aflahæstu bátarnir eru vb. Guð- björg með 1280 tn. og Gunnvör með tæp- ar 1200 tn. — Auk Isafjarðarbátanna lögðu ýmsir aðkomubátar upp síld í bæn- um, m. a. vb. Auðbjörg og Húni frá Höfðakaupstað. — Saltað hefur verið í bænum í 3704 tn. Ókunnugt er sem stend- ur um magn frystisíldar til beitu og út- flutnings. Síldveiðunum er nú hvarvetna hér lokið. — Einn rúmlega 20 lesta vél- bátur, Ver, tók upp þorskanetj aveiðar í byrjun mánaðarins og aflaði vel, fékk 84 lestir. Einn smávélbátur, Skúli fógeti, var á færaveiðum, með tveimur mönnum. Afl- aði hann 12.500 kg., stormar hömluðu lengstum veiðum. Togararnir voru að karfaveiðum við Nýfundnaland og öfluðu vel. Bv. Sólborg fékk 629 lestir í tveimur veiðiferðum. ís- borg fór eina veiðiferð og aflaði 288 lestir. Súðavík. Vb. Sæfari og Trausti voru báðir á reknetjaveiðum og aflaði Trausti einkum vel, fékk 1147 tn., en Sæfari 800 tn. Þeir byrjuðu veiðar 26. ágúst. Vb. Valur, 14 lesta, stundaði færaveiðar, með 3 mönnum oftast fram yfir 20. septem- ber og aflaði um 12 lestir. Grunnavík. Vb. Dynjandi og Heklu- tindur, hinn fyrrnefndi 10 lesta með 4 mönnum, hinn síðarnefndi, 5 lesta með 2 og 3 mönnum, stunduðu þorskveiðar með netjum og sömulei'ðis í ágúst. Bátar þessir hafa aflað mjög vel í sumar. Hefur Dynjandi fengið um 105 lestir í tæpa tvo mánuði, en Heklutindur um 80 lestir. Steingrímsfjörður. Sex smávélbátar með tveimur mönnum frá Hólmavík og Drangsnesi voru stopult að veiðum með færi og línu fram undir miðjan septem- ber. Aflinn fremur rýr.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.