Ægir - 15.10.1958, Page 6
348
ÆGIR
Varpa án rafskauta.
Mynd nr. 21 (IV—V). Varpa með rafskautum.
Strax og fiskurinn bítur á krókinn þá
lamast hann og getur ekki losað sig.
Þessi aðferð styttir veiðitímann til muna.
b. Aðferð við að ,,lyfta“ fiski í nót og
dæling með rafmögnuðum (anodefied)
slönguhaus, sem sérstaklega er notuð í
sambandi við „amerísku kraftblökkina“
(Puritic power block). Þessi aðferð hefur
reynzt vel við fisk svipaðrar stærðar og
síld. Eftir herpingu nótarinnar hefur
fiskinum, og jafnvel þeim, sem eru við
botn nótarinnar, verið dælt um borð
(mynd nr. 21 III) með fiskidælu. Með
þessari aðferð er auðvelt að þurrka nót-
ina með kraftblökkinni.
c. Byssu-pumpu aðferðin. (Einkaleyfi
Dethloffs). Þegar torfa hefur fundizt, er
rafmagnaðri flotkúlu skotið með sérstakri
loftbyssu (smíðuð af Dethloff Electric)
(sjá mynd nr. 21 I) þangað, sem torfan
er. Kúlan flýtur eins og dufl og er tengd
skipinu með fljótandi rafmagnslínu. Slátt-
straumur dregur fiskinn að kúlunni
strax og hún kemur í sjóinn (mynd 21
II). Fiskurinn syndir strax að skautinu
(innan 1 sek.) og þaðan má dæla honum
um borð í skipið. Þessi veiðiaðferð hefur
verið reynd með góðum árangri. Orkan,
sem notuð var við tilraunirnar, var um
80 kW., en síðar hefur verið hægt að
minnka straummagnið verulega. Byssu-
pumpu aðferðin hæfir veiðum á smáfiski
að síldarstærð. Ummál aðdráttarverkun-
arinnar um kúluna fer eftir stærð fisks-
ins, en getur verið 25—35 mtr. ef hæfi-
leg orka er notuð.
d. Lítið handtæki hefur verið reynt til
að ,,deyfa“ sardínur. Því er fest á tré-
stöng og ætlað er að það sé notað eftir
snurpingu meðan á háfun stendur, til að
vernda roð og hreistur.
e. Reynd hefur verið rafmagns-girðing,