Ægir

Årgang

Ægir - 15.10.1958, Side 19

Ægir - 15.10.1958, Side 19
Æ GIR 361 Frá Þýzkalandi. Lánsfjárveitmgar til hraðfrystihúsa og dreifingarkerfa. Uppbyggingarlánabankinn í Frankfurt segist reiðubúinn að veita lán til langs tíma, sem notuð verði til eflingar mark- aðs fyrir hraðfrystar afurðir. Vextir nema 1V2% á ári nettó. Útborgun verður 100%. Kostnaður í sambandi við lán- tökuna verður gefinn eftir. Endurgreiðsl- ur, sem hefjast eftir mismunandi langan tíma og fara eftir því til hvers lánað var, greiðast hálfsmánaðarlega. Lengsti láns- tími 12 ár. Upphæð lánanna r.emur frá 75.000 DM til 500.000 DM. Lántöku um- sóknir ásamt upplýsingum og lýsingu á því, sem lána á til, sendist gegnum við- skiptabanka þeirra, sem lánin vilja taka, en þeir verða jafnframt að takast á hend- ur ábyrgð fyrir viðkomandi aðila. A. F. Z. Saltfiskframleiðsla Vestur-Þjóðverja. 16 þýzkir togarar, sem voru á saltfisk- veiðum í apríl og maí s. 1. fengu allir full- fermi. Togarinn Saarbriicken kom fyrst- ur heim um miðjan júní með 250 tonn af söltuðum þorski, sem fluttur var út til Ítalíu. Sjö aðrir togarar lönduðu í þýzk- um höfnum en átta sigldu með aflann beint til Portúgal. Fiskets Gang. Frá Kunada. Geymsla fisks til flökunar siðar. Þrír kanadískir vísindamenn (N. J. Dyer, W. A. MaeCallum og Doris J. Fraser, hafa látið það álit í Ijós, að hægt sé að geyma heilfrystan kola í nokkurn tíma og þíða hann og flaka seinna. í skýrslum til Fiskirannsóknarráðs Kan- ada benda þeir á að hentugt sé að geta geymt eitthvað af aflanum óunnum þeg- ar mikið fiskast og vinna hann þegar minna berst að, því þá sé stöðugt hægd að halda vinnslustöðinni við fulla fram- leiðslu. „U. S. Fish and Wildlife Service“ í Framhald á bls. 364. NánrLsgreinar bréfaskóla S/S eru: Skipulag og starfshættir samvinnufélaga Fundarstjórn og fundarreglur Bókfærsla I Bókfærsla II Búreikningar Islenzk réttritun íslenzk bragfræði Enska fyrir byrjendur Enska, framhaldsflokkur Danska fyrir byrjendur Danska, framhaldsflokkur Þýzka fyrir byrjendur Franska Esperantó Reikningur Algebra Eðlisfræði Mótorfræði I Mótorfræði II Siglingafræði Landbúnaðarvélar og verkfæri Sálarfræði Skák fyrir byrjendur Skák, framhaldsflokkur Ilvur sem þér búi<) á laiidinu, getiú þcr stundui) iiám vii) bréfuskólnnn og þaiinig notii) tilsugnar liinna fierustu kennara. Athijtjli skal rakin á /ii'í, •««) ttréfankólinn starfar allt tírió. BRÉFASKÓLI SÍS

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.