Ægir - 15.08.1964, Síða 3
Æ G I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
57. árg. Reykjavík 15. ágúst 1964 Nr. 14
IJtgerð og aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
1.—31. júlí 1961).
Vestmannaeyjar: Þaðan hafa 67 bátar
stundað veiðar, þar af 24 bátar með fiski-
troll, 12 með humartroll, 10 með drag-
nót, 3 með lúðulínu og 18 bátar hafa
stundað síldveiðar aðallega við Vest-
mannaeyjar, en 5 þeirra fóru um tíma til
síldveiða við Norðurland. — Gæftir voru
slæmar á tímabilinu fyrir dragnótina og
humarveiðar og afli yfirleitt rýr, aflinn á
tímabilinu (síldarafli ekki meðtalinn)
varð 1343 lestir (þar af voru 36 lestir
slitinn humar). 6 bátar hafa hver um
sig farið 1 söluferð á erlendan markað
með alls 160 lestir, þar af er eigin afli
130 lestir.
Stokkseyri: Þaðan stunduðu 5 bátar
humarveiðar. Gæftir voru fremur slæmar
°g afli rýr. Aflinn á tímabilinu varð alls
38 lestir, þar af voru 7 lestir slitinn hum-
ar.
Eyrarbakki: Þaðan stunduðu 3 bátar
humarveiðar og 1 bátur dragnótaveiði,
aflinn hjá humarbátunum varð 20 lestir
á tímabilinu, þar af voru 7 lestir slitinn
humar. Afli dragnótabátsins varð 13 lest-
ir, þar af voru 7 lestir ýsa en 6 lestir koli.
Þorlákshöfn: Þaðan stunduðu 4 bátar
humarveiðar. Aflinn á tímabilinu varð
^lls 52 lestir, þar af voru 12 lestir slitinn
humar. Gæftir voru mjög óhagstæðar.
Grindavík: Þaðan hafa 14 bátar stund-
að humarveiðar (þar af eru 3 aðkomubát-
ar). Gæftir hafa verið fremur óhagstæð-
ar og varð afli fremur rýr. Aflinn á
tímabilinu varð alls 202 lestir, þar af
voru 57 lestir óslitinn humar.
Sandgerði: Þaðan hafa 10 bátar stund-
að veiðar á tímabilinu, þar af voru 4 með
humartroll, 3 með botnvörpu og 3 með
dragnót. Gæftir voru stirðar. — Aflinn á
tímabilinu varð alls 387 lestir í 83 sjó-
ferðum og skiptist þannig:
1 botnvörpu 171 lest í 39 sjóferðnm
í humartroll 99 lestir í 21 sjóferð
I drag'nót 87 lestir í 23 sjóferðum
Keflavík: Þaðan hafa 25 bátar stundað
veiðar, þar af voru 3 bátar með botn-
vörpu, 6 með humartroll og 16 með drag-
nót. Gæftir voru afar óhagstæðar. Aflinn
á tímabilinu varð sem hér segir:
I botnvörpu 40 lestir í 8 sjóferðum
í humartroll 62 lestir í 22 „
í drag'nól, 782 lestir í 87 „
Vogar: Þaðan stunduðu 2 bátar hum-
arveiðar, gæftir voru slæmar og afli
fremur rýr, eða alls 52 lestir á tímabil-
inu, þar af voru 23 lestir óslitinn humar.
Hafnarfjörður: Þaðan hafa 15 bátar
stundað humarveiðar, afli þeirra á tíma-
bilinu varð 220 lestir, þar af voru um 80
lestir slitinn humar.
Reykjavík: Þaðan hafa 42 bátar stund-
að veiðar á tímabilinu, þar af voru 20
með humartroll, 18 með dragnót, en 4