Ægir - 15.08.1964, Side 5
ÆGIR
247
Hnífsdalur: Engin útgerð var þaðan í
júní.
ísafjördur: 19 bátar voru á handfæra-
veiðum og 1 á humarveiðum, og var heild-
araflinn 229 lestir. Aflahæstur ísafjarð-
arbáta var Gylfi með 42 lestir af fiski og
14 lestir af humar, en af færabátunum
var Örn aflahæstur með 36 lestir í 6 róðr-
um.
Súðavík: 1 bátur stundaði humarveiðar
fvá Súðavík og var búinn að fá 18 lestir
af fiski og humar.
AUSTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í júní
Um mánaðamótin maí-júní voru flestir
stóru bátarnir í fjórðungnum að verða til-
búnir að fara á síldveiðarnar, og byrjuðu
flestir í fyrstu viku mánaðarins. Fjórir
bátar 25 til 53 tonna voru á humarveið-
um. Nokkrir minni bátar 15 til 30 tonna
fóru á dragnótaveiðar strax og leyfi til
veiðanna var veitt. Minnstu þilfarsbát-
urnir stunduðu línu- og handfæraveiðar.
Einnig voru tveir eða þrír stærri bátar á
handfæraveiðum. Mjög fáir opnir vélbát-
av stunduðu veiðar. Síldveiðin í mánuðin-
uni gekk yfirleitt fremur vel. Humarveið-
arnar gengu vel. — Dragnótaveiðarnar
Sengu allsæmilega, en á línu og handfæri
yar aflinn mjög lélegur. Það lítur helzt
ut fyrir að smábátaútgerðin í fjórðungn-
um ætli alveg að leggjast niður.
Hornafjörður: Þaðan eru 4 stóru bát-
arnir á síldveiðum frá því snemma í mán-
abinum. Þrír minni bátar eru á humar-
veiðum, auk þess lagði einn humarveiði-
bátur frá Norðfirði þar upp afla sinn.
~~ Tveir minnstu þilfarsbátarnir fóru á
óragnótaveiðar, og einn opinn vélbátur
uieð tveimur mönnum reri með línu. Afli
var fremur lítill hjá öðrum en humarbát-
unum, en þeir fengu milli 80 og 90 tonn
af humar óslitnum. Afli alls lagður á land
í ínánuðinum var 127,5 tonn.
Djúpivogur: Stóru bátarnir tveir fóru
a síldveiðar strax upp úr mánaðamótun-
Um. .— Tveir minni þillfarsbátar fóru á
dragnótaveiðar þegar leyfin voru veitt.
Einn lítill þilfarsbátur reri eitthvað með
línu. Mjög lítill afli barst á land í mánuð-
inum. Ein síldarsöltunarstöð mun verða
starfrækt í sumar.
Breiðdalsvík: Þaðan er v/s „Sigurður
Jónsson“ á síldveiðum frá því fyrir miðj-
an mánuðinn. Annað er ekki stundaður
sjór þaðan. Um mánaðamótin voru komin
um 10.000 mál af síld til bræðslunnar.
Síld mun verða söltuð þar á einni söltun-
arstöð eins og á síðastliðnu sumri.
Stöðvarfjöröur: Stóru bátarnir tveir
fóru á síldveiðar snemma í mánuðinum.
Annað var ekki stundaður sjór þaðan og
því enginn afli lagður þar á land í mán-
uðinum annað en 150 tunnur af síld sem
voru frystar. Söltuð verður síld á einni
söltunarstöð í sumar þegar þar að kemur.
Fáskrúösfjöröur: Þaðan fóru þrír stóru
bátarnir á síldveiðar snemma í mánuðin-
um. Þrettán smábátar reru nokkuð með
línu, aðallega fyrrihlutann í mánuðinum,
en voru allir hættir fyrir mánaðamótin,
mest vegna aflaleysis og einnig vegna
þess að mikil atvinna var í landi, sérstak-
lega eftir að síldveiðarnar hófust. Enginn
minni þilfarsbátanna hefir farið á drag-
nótaveiðar. Síldarverksmiðjan var búin að
taka á móti eitthvað innan við 30.000 mál
af síld um mánaðamótin. Þrjár síldarsölt-
unarstöðvar eru tilbúnar til að salta síld
nú um mánaðamótin.
Rey'öarf jöröur: Stóru bátarnir tveir eru
á síldveiðum. Annar byrjaði um mánaða-
mótin, en hinn um miðjan mánuðinn. —
Opnu vélbátarnir reru lítið og öfluðu lít-
ið. Síldarverksmiðjan tók til starfa strax
um mánaðamótin og hefir starfað óslitið
síðan. Að minnsta kosti þrjár síldarsölt-
unarstöðvar verða starfandi í sumar.
Eskifjörður: Átta stórir bátar eru á
síldveiðum og byrjuðu flestir rétt um og
upp úr mánaðamótunum. Smærri bátar
hafa sama og ekkert róið. — Síldarverk-
smiðjan var búin að taka á móti um 36.-
000 málum af síld um mánaðamótin. Lít-
ilsháttar hafði verið fryst af síld. Fimm