Ægir - 15.08.1964, Síða 6
248
ÆGIR
síldarsöltunarstöðvar verða starfræktar í
sumar.
NorSfjörður: Átta stórir bátar eru á
síldveiðum. — Einn 25 tonna bátur er á
humarveiðum og leggur aflann á land á
Hornafirði. Tíu til tólf minni bátar hafa
róið að staðaldri ýmist með línu eða hand-
færi. Aflinn var oftast mjög tregur eða
alls lagt á land í mánuðinum um 197 tonn.
Lítilsháttar var lagt á land annarsstaðar.
Síldarverksmiðjan tók til starfa strax eft-
ir mánaðamótin. Fimm síldarsöltunar-
stöðvar munu starfa í sumar.
Mjóifjörður: Þar er aðeins einn níu
tonna bátur sem dálítið er róið á og legg-
ur hann aflann upp á Norðfirði.
Seyðisfjörður: Fjórir stórir bátar fóru
á síldveiðar strax eftir mánaðamótin. —
Tveir bátar 15 og 30 tonna fóru á drag-
nótaveiðar seint í mánuðinum og tveir
minni bátar róa með línu og handfæri.
Dragnótabátarnir öfluðu fremur vel og
létu aflann að mestu í skip sem sigldi með
hann til Bretlands. Afli hinna var mjög
tregur. Síldarverksmiðjan tók til starfa
snemma í mánuðinum. Lítilsháttar var
fryst af síld. Níu síldarsöltunarstöðvar
munu verða starfandi í sumar.
Borgarfjörður: Þar eru ekki nema opn-
ir vélbátar og hefir ekki verið um neina
eiginlega útgerð að ræða það sem af er
árinu, enda afli afarlélegur það sem reynt
hefir verið að róa. Síldarverksmiðjan tók
til starfa snemma í mánuðinum. — Tvær
síldarsöltunarstöðvar munu verða þar í
sumar.
Vopnafjörður: Útgerð þar er einn 40
tonna bátur og einn 5 tonna þilfarsbátur,
sem báðir eru gerðir út að mestu með
handfærum. Lítilsháttar hafa opnir vél-
bátar einnig róið, en afli verið mjög lítill.
Alls var afli lagður á land í mánuðinum
rúm 40 tonn. Nokkuð af því var af að-
komubátum. — Síldarverksmiðjan tók til
starfa strax eftir mánaðamótin. Fjórar
síldarsöltunarstöðvar verða þar í sumar.
Bakkafjörður: Þar eru aðeins opnir
vélbátar, en vegna aflatregðu hefir eng-
inn róið þar að staðaldri. Fyrsta síldin
kom þangað í bræðsluna um miðjan mán-
uðinn. Ein síldarsöltunarstöð mun starfa
í sumar.
SlLDVEIÐARNAR
norðanlands og austan.
8. jvU. S.l. sólarhring var bræla á mið-
unum og ekkert veiðiveður. 13 skip til-
kynntu síldarleitinni um afla alls 4.350
mál og tn.
9. júlí. Landlega var og öll skip í höfn
s.l. sólarhring.
10. júlí. Komið var sæmilegt veður, en
aðeins einn bátur tilkynnti veiði, 700 tn.,
sem veiddist norður í Tangaflaki. Ægii’
fann síld 69 sjómílur 77° frá Langanesi.
11. júlí. Síldarleitinni var tilkynnt uB
afla 50 skipa með samtals 25.750 mál og
tn. Fáein skipanna fengu afla sinn 70
mílur austur af Langanesi, en flest fengu
skipin afla í Héraðsflóadýpi og nokkur
sunnar, þ.e. í Tangaflaki. — Bræla hefir
verið á miðunum undanfarna daga, en i
gær var komið ágætt veður.
12. júlí. S.l. sólarhring var veður gott
og mikið kastað. 117 skip með samtals
111.180 mál og tn. tilkynntu síldarleitinni
um afla. Síldin veiddist í Héraðsflóa og
alla leið suður undir Hvalbak. Síldin vai’
mjög blönduð og fór því mestur hluti
hennar í bræðslu.
13. júlí. 52 skip með samtals 46.600
mál og tn. tilkynntu afla s.l. sólarhring,
og veiddist síldin aðallega 20-25 míhu’
SSA og ASA af Skrúð.
14. júlí. Síldarleitinni var tilkynnt uni
afla 50 skipa með 30.900 mál og tn. Veiði-
svæðið var aðallega í Norðfjarðardýpi
suður undir Hvalbak. Veður var sæmilegt
á miðunum, en norðar var suðvestan
bræla allt að 6 vindstigum. Síldin er enn
nokkuð blönduð.
15. júlí. 43 skip fengu alls 23.850 niál
og tn. Veiðisvæðið var eingöngu í Norð-
fjarðardýpi, í Tangaflaki að norðan og
Gerpisflaki að sunnan. Veðrið var sænú-