Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1964, Síða 9

Ægir - 15.08.1964, Síða 9
ÆGIR 251 Aflinn hefur verið hagnýttur sem hér segir: 1964 1963 í salt uppsalt. tn. 98.843 209.131 í bræöslu mál 1.177.060 327.971 í frystingri uppm. tn. 19.323 17.849 Vikan 26. júlí—1. ágúst i Vikuaflinn nam 88.523 málum ogtunn- um og var heildarafli á miðnætti laugar- dags. 1. ágúst orðinn 1.463.115 mál og tunnur. Síldarúrgangur frá söltunarstöðv- um alls 79.366 mál, er innifalinn í heild- armagninu. Vikuaflinn á sama tíma í fyrra var 116.760 mál og tunnur og heildarafli þá orðinn 673.711 mál og tunnur. Aflinn hefur verið hagnýttur þannig: 1964 1963 í salt upps. tn. 134.692 270.426 í bræðslu mál 1.308.302 381.111 í fryst. uppm. tn. 20.211 22.174 Vikan 2.—8. ágúst Vikuaflinn nam 140.184 málumogtunn- um og var þá heildaraflinn orðinn s.l. laugardag 1.603.299 mál og tunnur, en á sama tíma í fyrra 865.139 mál og tunnur. I Vestmannaeyjum hefur frá júníbyrj- un verið landað 119.714 málum. Aflinn hefur verið hagnýttur þannig: 1964 1963 í salt uppm. tn. 160.864 340.585 í bræðslu mál 1.419.322 499.857 í fryst. uppm. tn. 23.113 24.697 TOGARARNIR - ! í júlí í júlí stunduðu sunnlenzku togararnir langmest karfaveiðar við Austur-Græn- land, einkum á Jónsmiðum og SA af Ang- ^uagssalik og í námunda við þessi mið. Yfirleitt fékkst þarna vænn karfi, sem fór til vinnslu í frystihúsunum. Nokkrir togarar komu með fullfermi af þessum ^uiðum. Togarinn Sigurður hafði mestan afla í veiðiför í mánuðinum, 343 lestir. Einn togari var við Vestur-Grænland, mest úti af Frederikshaab og í Juliane- haabbugt, en fékk ekki mikinn fisk. Þá er í frásögu færandi, að togarinn Þorsteinn þorskabítur fór í fiskileitar- ferð á Nýfundnalandsmið og leitaði bæði á Ritubanka og í Sundál í grennd. Fannst smákropp á nokkrum stöðum, en karfinn var ekki talinn góður í vinnslu. Nokkrir togarar voru á heimamiðum aðallega á svæðinu frá Víkurál og suður í Jökultungur, en gerðu ekki eins góða túra og þeir. sem fóru til Austur-Græn- lands. — Átta söluferðir voru farnar til Bretlands með fisk af heimamiðum og tókust yfirleitt mjög vel miðað við þenn- an árstíma, en þó voru seinni söluferðir mun betri. Þrír af togurum Útgerðarfélags Akur- eyringa stunduðu eingöngu veiðar fyrir norðan land, mest á Kolbeinseyjar- og Sléttugrunnssvæðinu og fiskuðu frekar vel, mest þorsk og talsvert af karfa. Eftirfarandi tafla sýnir hvar og hve miklu togararnir lönduðu í júlímánuði: Löndunarhöfn: Landanir: Landaðmagn Reykjavík 19 3.546.470 Akureyri 10 1.381.940 Hafnarfjörður 1 188.300 Bretland 8 1.127.412 38 6.244.122 ísfiskurinn á brezka markaðinum seld- ist fyrir £ 79.383-15-3 eða að jafnaði kr. 8,45, pr. kg., sem er ágætt verð yfir há- sumarið. Mestan afla lagði á land í mán- uðinum togarinn Sigurður, 633 lestir í tveim veiðiferðum. Söluferðir vélbáta. ) I júlí voru farnar 10 söluferðir á er- lendan markað með ísvarinn bátafisk. — Mest var þetta fiskur af Vestmannaeyja- bátum og var ýmist seldur í Grimsby eða Aberdeen. Samtals voru þetta 272,014 kg., sem seldust fyrir £ 26.257-19-7 eða að jafnaði kr. 11.58 fyrir kílóið. Mestmegnis var þetta ýsa og nokkuð af þorski og svo skarkoli og þykkvalúra.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.