Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 11

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 11
Æ GIR 253 2)a uíf> Ofafsson, fislimáfasti ’jon: Staha íslenzkra fiskveiða í Evrópu Niðurlag Á undanförnum árum, við skulum segja í nær hálfan annan áratug, hefur því oft verið haldið fram að afstaða íslendinga í landhelgismálinu hafi verið einstrengings- leg og valdið sumumþjóðummiklutjóniog óheppilegri þróun á alþjóðavettvangi. Við höfum oftlega verið að því spurðir af hverju við vildum ekki semja um þessi mál og hvattir til þess að fara þá leið, einnig af okkur vinveittum þjóðum, sem ekki hafa haft hér neinna hagsmuna að gæta. Okkar svar hefur alltaf verið hið sama. Á þessu sviði hafa skapazt vissar reglur alþjóðaréttar, sem við hljótum að byggja aðgerðir okkar á, en samningar um slíkt, þar sem um lífshagsmunamál þjóðarinn- ar er að tefla geta ekki komið til greina. Þeir samningar, sem gerðir voru við Bret- land árið 1961 voru alveg sérstaks eðlis. Þá hafði Bretland í meira en 2*4 ár neit- að að viðurkenna 12 mílna fiskveiðiland- helgi við Island og sem afleiðing af því hafði skapazt mikið hættuástand á hafinu umhverfis Island, þar sem brezkir togar- ar stunduðu veiðar undir vernd herskipa. Þeirri hættu var bægt frá með samningn- um en jafnframt, og það var þýðingar- mikið, ekki aðeins viðurkenndu Bretar óafturkallanlega 12 mílna fiskveiðiland- helgina, heldur einnig nýja grunnlínu á fjórum stöðum, sem jafngiltu verulegri stækkun fiskveiðilandhelginnar frá því, sem ákveðið hafði verið 1958, þegar 12 mílurnar voru ákveðnar. Á móti þessu fengu Bretar svo heimild til veiða á milli 6 og 12 mílna á takmörkuðum svæðum og takmörkuðum tímum, en aðeins til þriggja ára og rann sá tími út í marz á þessu ári. En með samningi þessum er einnig komið í veg fyrir, að slíkt ástand geti skapazt aftur eins og var hér áður en samningurinn var gerður, því ef til kem- ur, að íslendingar færa frekar út fisk- veiðilandhelgi sína og ágreiningur verður um það, þá getur hvor aðili, sem er, Bret- ar eða íslendingar, skotið þeim ágreiningi til Alþjóðadómstólsins. Bretar geta því ekki beitt flotaveldi sínu, en íslendingar hafa með þessu lýst því yfir, að þeir munu, eins og hingað til, byggja aðgerðir sínar á grundvelli alþjóðalaga, enda er það skoð- un íslendinga, að smáþjóð, eins og við vissulega erum, eigi sína beztu vernd í alþjóðalögum. Vissulega er það rétt, að það féll í hlut íslendinga að hafa forystu í þessu fisk- veiðilandhelgismáli um árabil og við telj- um, að við höfum þar rækt sögulegt hlut- verk, en þá er líka á það að líta, að rökin eru að nokkru leyti sótt í dóm Alþjóða- dómstólsins í máli Norðmanna og Breta, frá árinu 1951, en þar var einmitt sér- staklega tekið tillit til efnahagslegra sjón- armiða, sem ávallt hefur verið einn hyrn- ingarsteinninn undir málflutningi íslend- inga í þessu máli og sá, sem dugað hefur okkur einna bezt. Því verður ekki neitað, að þróun fisk- veiðilandhelginnar í Evrópu hefur haft veruleg áhrif á vissar greinar fiskveiða sumra Evi’ópuþjóðanna, einkum úthafs- togveiðarnar. Það var að vísu hæpið að tala um úthafsveiðar þegar togarar stund- uðu þessar veiðar inn að þremur mílum frá ströndinni, einnig í flóum og stórum fjörð- um, það mundum við nú kalla grunnmiða- veiðar, en þannig höfðu þessar veiðar verið stundaðar um meira en hálfrar aldar skeið við ísland, m. a. með þeirri augljósu af- leiðingu, að vissir fiskistofnar voru komnir á hnignunarstig og sjá mátti fyrir, að svo

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.