Ægir

Årgang

Ægir - 15.08.1964, Side 18

Ægir - 15.08.1964, Side 18
260 ÆGIR vera um 40 sjómílur suðaustur af Horna- firði. Yfirleitt má því telja, að meginátu- svæðið sé um 70 sjómílur undan norður- ströndinni, en gangi nær landi sunnan Langaness og finnist þar, þegar komið er út fyrir 200 metra dýpi. Norskir og rússneskir fiskifræðingar töldu almennt, að átumagn í hafinu aust- an íslands væri heldur minna en í fyrra, en á öllu hinu rannsakaða hafsvæði kom glögglega í Ijós, að mjög snemma hafði vorað á öllu hafsvæðinu,. og því var þör- ungagróður og átumagn fyrr á ferðinni en oftast áður. Ætisgöngu norsku síldarinnar varð fyrst vart um 100 sjóm. ANA af Langa- nesi. Fyrstu 10 daga júnímánaðar þokað- ist síldin vestur og norðvestur á bóginn, en hélt síðan til hafs og dreifðist fyrir miðjan mánuðinn, enda var mjög lítið rauðátumagn á venjulegum síldarmiðum úti af austanverðu Norðurlandi eins og skýrt var frá hér að framan. Rannsóknir á síldinni sjálfri sýna, að hér var um að ræða mjög stóra síld, þ.e. elztu árganga norska síldarstofnsins. í byrjun rannsóknatímabilsins varð einnig vart við nokkurt síldarmagn djúpt úti af Austfjörðum og hefur þar sennilega verið á ferð annar hluti norska stofnsins, sem nú hefur gengið á Austfjarðamið. Auk gömlu norsku síldarinnar er einn- ig talsvert af yngri árgöngum norska síld- arstofnsins í síldargöngu þeirri, sem nú er á miðunum úti af Austfjörðum. Saman- burður við fyrri ár sýnir, að ætisganga norsku síldarinnar kom að norðaustur- landi um svipað leyti og í fyrra. Á Aust- fjarðamiðum er síldargangan hinsvegar óvenjusnemma á ferðinni. — Athuganir rannsóknaskipanna benda til þess að í vor sé þessi ætisganga síldarinnar öllu sterkari en í fyrra. Á vestursvæðinu norðanlands hefur venjulega verið komið nokkurt magn ís- lenzkrar vorgotssíldar um miðjan júní- Svo reyndist þó hvorki í ár né í fyrra, því að verulegt síldarmagn fannst að þessu sinni hvergi á vestursvæðinu. Enda þótt nokkurt magn af yngri ár- göngum norsku síldarinnar sé þegar geng- ið á Austfjarðamið, fannst meginhluti þeirra langt austur í hafi, og er ekki bú- izt við að þessi yngri hluti norska síldar- stofnsins gangi á Islandsmið fyrr en síðla sumars. í stuttu máli má því segja, að eftirfar- andi sé einkennandi fyrir ástandið á sjón- um og síldargöngur á þessu vori: Hitastig sjávar er um 1° yfir meðallagi og um 2° hærra en í fyrra. Rauðátumagn er mjög lítið á grunnmið- um norðanlands, en fer sennilega heldur vaxandi á næstu vikum. Átuhámörk eru einkum djúpt úti af Langanesi og úti af Austurlandi, þar sem meginhluti norsku síldargöngunnar er nú. — Búast má við auknu magni ungrar síldar á miðin síð- ari hluta sumars. Af Islendinga hálfu sátu hinn sameig' inlega rannsóknafund fiskifræðingarnir Ingvar Hallgrímsson og Jakob Jakobsson og dr. Svend-Aage Malmberg sjófræðing' ur. Allir sjómenn, eldri og yngri, þurfa að eignast bókina ENSK LESTRARBÓK handa sjómönnum. Þar er að finna ensk heiti ó öllum hlutum ó skipi og í dokk. Auk þess er bókin góður leiðarvísir fyrir sjómenn í erlendum höfnum. — Kostar 40 kr. í sterku bandi. Bókaverzlun ísafoldar.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.