Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 19

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 19
ÆGIR 261 t Minningarorð: EÐVALD JÓNSSON shipstjóri Eðvald Jónsson skipstjóri og útgerðar- ^aður andaðist í Borgarsjúkrahúsinu 21. 3úní síðastliðinn. Hann var fæddur 19. toaí 1904 að Hofi í Mjóafirði. Foreldrar hans voru Jón Árnason bóndi og kirkju- °rganisti frá Hofi og Guðrún Einarsdóttir frá Hofi í Garði suður. Hann var alla ævi hraustur og þrekmikill þar til á síðast- hðnu ári, að hann kenndi sjúkdóms þess yfirbugaði hann eftir mjög erfiða bar- attu er á leið. Snemma hneigðist hugur hans til sjó- ^ennsku, sem varð hans aðalævistarf. — Lengi gerði hann út vélbáta sjálfur af ýaisum stærðum. Ungur varð hann formaður, harðgerð- u\' sjósóknari, og það svo að stundum hótti fulldjarft telft, en alltaf tókst hon- uai að koma skipi sínu heilu í höfn. — Sýndu sumar sjóferðir hans að hann var vaskur og góður stjórnari. Eftir að hann eignaðist sína eigin báta og útgerð, gerði hann sér mikið far um að hafa allan bún- að á sjó og landi í góðu standi, búa báta sína öllum öryggistækjum svo sem talstöð og dýptarmæli og gúmmíbátum, þó sumir bátar hans væru ekki stórir. Hann sótti sjó um allt Austurland, mörg ár formað- ur frá Hornafirði á vetrum, einnig stund- aði hann sjó við Faxaflóa og Vestmanna- eyjar, þar sem hann stundaði loðnuveið- ar til beitu nokkrar vertíðir, ýmist á eigin útgerð eða fyrir aðra. Til marks um hirðusemi Eðvalds og búnað bátanna, vil ég segja frá því, er ég gegndi störfum skipaeftirlitsmanns á Austfjörðum, var eitt sinn staddur hjá mér fyrrv. skipaskoðunarstjóri Ól. sál. Sveinsson, vorum við Ólafur á gangi út við höfn, kom þá þar á báti sínum Eðvald að bryggjunni. Hafði skipaskoðunarstjóri þá orð á því að þessi bátur væri sér- staklega vel útlítandi um allan búnað og hirðusemi svo að til fyrirmynd- ar væri. — Þessi ummæli skipaskoðun- arstjóra segja það sem ég vildi mega segja um Eðvald frænda minn þegar hann er allur. Nokkurn þátt tók hann í félags- málum sjómanna, sat á nokkrum fjórð- ungsþingum Fiskifélagsins á Austurlandi. Ekki verður hér sögð saga Eðvalds lengri. Hann var giftur Hólmfríði Einarsdóttur frá Hofi í Mjóafirði. Eignuðust þau 9 börn sem öll eru uppkomin, 6 dætur og 3 syni sem allir stunda sjóinn. Sendi ég svo konu hans,. börnum og venzlafólki hans öllu mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið þeim allrar blessunar. Árni Vilhjálmsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.