Ægir

Volume

Ægir - 15.08.1964, Page 25

Ægir - 15.08.1964, Page 25
ÆGIR 267 Erlendar fréttir Frá Grænlandi Minna um þorsk, meira af steinbít við Grœnland. Samkvæmt upplýsingum frá konunglegu Græn- landsverzluninni nam þorskaflinn við Grænland 30 millj. kg. árið 1963. Af því magni fóru 20,7 »úllj. kg. í salt og frystingu, um 2,8 millj. kg.. «1 skreiðarframleiðslu og um 6,5 millj. kg. fóru «1 neyzlu í Grænlandi. Þorskveiðin dróst mjög mikið saman frá því arinu áður, vegna óvenjulegra kulda og snjó- komu fram í júnímánuð. Grænlandsverzlunin tel- ur, að landanir af þorski hafi verið 36% minni árið 1963 en 1962. Árið 1963 varð framleiðsla á fullverkuðum saltfiski aðeins 4600 lestir, en var 8200 lestir árið a undan. Saltfiskverkunin er ennþá stærsti þátt- urinn í fiskiðnaði Grænlendinga. Þorskurinn brást, en steinbítsaflinn varð meiri yið Grænland á árinu 1963 en mörg undanfarin ar- Grænlandsverzlunin keypti 2300 lestir af steinbít á móti 1700 lestum árið 1962. útflutningsverðmæti frystra afurða var 7,2 núllj. kr. í fyrra, miðað við 9,2 millj. kr. árið Þui' áður. En við fyrrnefnda upphæð bætist verð- Uiæti birgða í Bandaríkjunum, sem seldar hafa Verið samkvæmt samningi, en áætlað verð þeirra ei' 2,9 millj. kr. Verzlun með selskinn jókst um 42% frá því yrið 1962 og var verðmætið um 5,3 millj. kr. á árinu 1963. Blárefaskinn hækkuðu um 47% á ai'inu 0g skinn af hvítref almennt um 18%. Konunglega Grænlandsverzlunin sá um teikn- jugar og smíði á 50 fiskibátum og strandferða- batum fyrir grænlenzka sjómenn og ýmsar stofn- auir þar í landi. Á þessu ári hefur verzlunin þegar séð um smíði á 22 fiskibátum og 3 flug- ^átum til eftirlits. (Fiskets Gang). Frá Hollandi ^ iskframleiðsla og fiskverzlun Hollendinga 1963. Heildarfiskafli Hollendinga árið 1963 varð ~®9 000 lest.ir, en var 254 000 lestir árið 1962 og' -82 000 lestir 1961. Þrátt fyrir þessa aukningu, sem einkum var að þakka betri útkomu á síld- veiðuniun, lækkaði verðmæti aflans úr 160,7 millj. gyllina 1962 niður í 141,5 millj. árið 1963. Saltsíldarframlciðslan varð 628 000 tunnur á ár- inu, en var 448 000 tunnur árið á undan. Yerð á saltsíld lækkaði því nær um helming, og sama er að segja um verð fersksíldar, en af henni feng- ust 53,7 millj. kg árið 1963, miðað við 34 millj. kg árið 1962. Minna barst á land af makríl en árið áður, eða 8,9 millj. kg móti 11,6 millj. kg 1962. Af bolfiski veiddust árið 1963 samtals 31 millj. kg, að verðmæti 15 millj. gyllina. Þó hér sé um að ræða aflaaukningu um 5 millj. kg frá árinu áður, varð verðmætið ekld nema 0,6 millj. gyllina meira. Afli helztu tegundanna varð sem hér segir (í millj. kg): Ýsa 8,2 (5,8 árið 1962), ufsi 4 (2,3), þorskur 6,7 (5,6) og lýsingur 10,2 (10). Flatfiskaflinn jókst úr 35 í 36 millj. kg, en verðmætið minnkaði úr 55,3 millj. gyllina í 48,8 millj. gyllina. Mest veiddist af skarkola, 20,8 millj. kg. Rækjuaflinn jókst frá árinu áður, úr 5,3 í 8,4 millj. kg. Smávegis verðlækkun varð á rækjunni. Af kræklingi fengust 838 000 tunnur árið 1963, en 775 000 tunnur 1962. Utflutningur á fiski nam 174 200 lestum árið 1963, en árið á undan voru fluttar út 176 000 lestir. Verðmæti útflutningsins lækkaði úr 190,8 millj. gyllina í 183 millj. gyllina. Helztu viðskiptalöndin voru Frakkland, Belgía, Vestur-Þýzkaland og Italía. Utflutningur á saltsíld skiptist þannig: Vestur- Þýzkaland 11 600 lcstir, Belgía 8 500, Frakkland 4 500 og Sovétríkin 4 900. Af fersksíld var mest flutt út til Vestur-Þýzkalands, 8 300 lestir, þá kom Belgía með 7100 lestir og Frakkland með 6 900. Af öðriun fiski keyptu eftirtalin lönd sein liér segir: Frakkland 11 600 lestir, Belgía 7 800, Vest- ur-Þýzkaland 6 900 og Ítalía 2000. A árinu 1963 jókst útflutningur til Austur- Evrópu, einkum vegna síldarkaupa Sovétríkj- anna. (Fiskets Gang).

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.