Ægir

Årgang

Ægir - 15.03.1965, Side 9

Ægir - 15.03.1965, Side 9
ÆGIR 99 FISKVEIÐAR NORÐMANNA 1964 Heildarfiskafli Norðmanna á árinu 1964 nam, samkvæmt þeim tölum, sem nú liggja fyrir, 1.410.000 lestum. Var verð- mæti aflans 777 millj n. kr. Hefir aflinn aukizt um 220 þús. lestir frá fyrra ári og hefir ekki verið meiri síðan 1957. Var einkum um að ræða aukningu í vetrar- síldveiðunum og einnig í síldveiðum í Norðursjó. Hefir vetrarsíldveiðin verið í lágmarki undanfarin ár, en virðist nú vera að aukast á ný. Aflamagn undanfarinna ára hefir ver- ið sem hér segir í þús. lestum: MeSaltal 1954—58 1.670 — 1959—63 1.269 — 1962 1.124 — 1963 1.190 — 1964 1.410 Undanfarin ár hefir fiskimönnum farið fekkandi í Noregi og var svo enn á þessu ari. Fækkaði heildartölu fiskimanna um nær 1.600, og var mest í nyrztu héruð- unum, þar sem fiskveiðarnar eru mest arstíðabundnar. Tala fiskiskipa var í árs- byrjun 1963 39.682. Þorskveiðarnar við Lófót fóru enn minnkandi og var aflinn nú 23.674 lestir, en 28.302 árið áður, og hefir ekki verið svo rýr afli síðan 1957. í Finnmörku var vorvertíð einnig léleg og nam aflinn aðeins 19.332 lestum, en var 1963 35.495 lestir, og hefir ekki verið minni síðan 1946. Veðurfar var að vísu óhagstætt og veld- ur það hér nokkru um, en þverrandi fiski- stofnar eru þó talin aðalorsökin. Vetrarsíldveiðarnar gáfu nú yfir 3 millj. hl., en aðeins 662 þús. hl. árið áður, og fór mestur hluti aflans til síldarverk- smiðjanna. Mikil aukning varð einnig á síldveiðum í Norðursjó, og var aflinn nú 186 þús. lestir, en aðeins 32 þús. lestir á fyrra ári. Er vaxandi sókn á þau veiði- svæði. Síldarafli til síldarverksmiðjanna frá íslandsmiðum var 930 þús. hl. eða svipað og árið áður, en til söltunar fóru aðeins 44.500 tn., en 83.130 tn. árið áður. (Samkvæmt upplýsingmn frá Sendiráði íslands í Osló). 1965 1964 1965 1964 Fiskafli Norðmanna Söltuð Fryst Heildarafli Hert Saltað ísað Fryst Meðalalýsi hrogn hrogn smál. smál. smál. smál. smál. hl. hl. hl. 13/3 25.089 5.451 7.738 5.301 6.599 10.173 2.779 10.129 14/3 28.652 7.934 11.380 4.297 5.041 13.178 1.340 3.364 SÍLDVEIÐI Heildarafli isað til útfl. Fryst Saltað Niðurs. Brceðsla hl. hl. hl. hl. hl. hl. 13/3 2.225.655 50.555 151.345 156.900 63.865 1.688.680 14/3 2.291.145 57.810 223.245 196.920 73.780 1.707.180 ega góður afli, aðallega þorskur, en einn- nokkuð af steinbít, ýsu og karfa. Úti af Kóp, í svokölluðu Nesdýpi, fyrir vest- an’ var um tíma nokkur ýsuafli. Af flák- anum við Kolluál norðvestur af Öndverð- arnesi var nokkur þorskafli, og á Jökul- tungunni, um 50 sjóm. vestur af Jökli veiddist karfi, en hann var smár og léleg- ur og seldist illa í Þýzkalandi. Gæftir voru sæmilegar miðað við árstíma. Á síð- unni hér á undan er skýrsla um sölur tog- aranna í febrúar.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.