Ægir - 15.03.1965, Qupperneq 9
ÆGIR
99
FISKVEIÐAR NORÐMANNA 1964
Heildarfiskafli Norðmanna á árinu
1964 nam, samkvæmt þeim tölum, sem nú
liggja fyrir, 1.410.000 lestum. Var verð-
mæti aflans 777 millj n. kr. Hefir aflinn
aukizt um 220 þús. lestir frá fyrra ári og
hefir ekki verið meiri síðan 1957. Var
einkum um að ræða aukningu í vetrar-
síldveiðunum og einnig í síldveiðum í
Norðursjó. Hefir vetrarsíldveiðin verið í
lágmarki undanfarin ár, en virðist nú
vera að aukast á ný.
Aflamagn undanfarinna ára hefir ver-
ið sem hér segir í þús. lestum:
MeSaltal 1954—58 1.670
— 1959—63 1.269
— 1962 1.124
— 1963 1.190
— 1964 1.410
Undanfarin ár hefir fiskimönnum farið
fekkandi í Noregi og var svo enn á þessu
ari. Fækkaði heildartölu fiskimanna um
nær 1.600, og var mest í nyrztu héruð-
unum, þar sem fiskveiðarnar eru mest
arstíðabundnar. Tala fiskiskipa var í árs-
byrjun 1963 39.682.
Þorskveiðarnar við Lófót fóru enn
minnkandi og var aflinn nú 23.674 lestir,
en 28.302 árið áður, og hefir ekki verið
svo rýr afli síðan 1957.
í Finnmörku var vorvertíð einnig léleg
og nam aflinn aðeins 19.332 lestum, en
var 1963 35.495 lestir, og hefir ekki verið
minni síðan 1946.
Veðurfar var að vísu óhagstætt og veld-
ur það hér nokkru um, en þverrandi fiski-
stofnar eru þó talin aðalorsökin.
Vetrarsíldveiðarnar gáfu nú yfir 3
millj. hl., en aðeins 662 þús. hl. árið áður,
og fór mestur hluti aflans til síldarverk-
smiðjanna. Mikil aukning varð einnig á
síldveiðum í Norðursjó, og var aflinn nú
186 þús. lestir, en aðeins 32 þús. lestir á
fyrra ári. Er vaxandi sókn á þau veiði-
svæði.
Síldarafli til síldarverksmiðjanna frá
íslandsmiðum var 930 þús. hl. eða svipað
og árið áður, en til söltunar fóru aðeins
44.500 tn., en 83.130 tn. árið áður.
(Samkvæmt upplýsingmn frá
Sendiráði íslands í Osló).
1965
1964
1965
1964
Fiskafli Norðmanna
Söltuð Fryst
Heildarafli Hert Saltað ísað Fryst Meðalalýsi hrogn hrogn
smál. smál. smál. smál. smál. hl. hl. hl.
13/3 25.089 5.451 7.738 5.301 6.599 10.173 2.779 10.129
14/3 28.652 7.934 11.380 4.297 5.041 13.178 1.340 3.364
SÍLDVEIÐI
Heildarafli isað til útfl. Fryst Saltað Niðurs. Brceðsla
hl. hl. hl. hl. hl. hl.
13/3 2.225.655 50.555 151.345 156.900 63.865 1.688.680
14/3 2.291.145 57.810 223.245 196.920 73.780 1.707.180
ega góður afli, aðallega þorskur, en einn-
nokkuð af steinbít, ýsu og karfa. Úti
af Kóp, í svokölluðu Nesdýpi, fyrir vest-
an’ var um tíma nokkur ýsuafli. Af flák-
anum við Kolluál norðvestur af Öndverð-
arnesi var nokkur þorskafli, og á Jökul-
tungunni, um 50 sjóm. vestur af Jökli
veiddist karfi, en hann var smár og léleg-
ur og seldist illa í Þýzkalandi. Gæftir
voru sæmilegar miðað við árstíma. Á síð-
unni hér á undan er skýrsla um sölur tog-
aranna í febrúar.