Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.08.1967, Qupperneq 25

Ægir - 15.08.1967, Qupperneq 25
ÆGIR 271 Hermann Vilhjálmsson erindrehi Fishifélags Islands Hermann Vilhjálmsson, erindreki Fiski- félags Islands í Austfirðingafjórðungi, andaðist hér í Reykjavík hinn 20. júlí s.l. Hann var fæddur að Hofi í Mjóafirði hinn 30. sept. 1894, sonur Vilhjálms Árnason- ar síðar bónda á Hánefsstöðum, Seyðis- firði, og konu hans Bjargar Sigurðardótt- ur. Að honum stóðu traustar ættir. Her- mann hóf ungur að stunda sjó. Fyrst með Árna bróður sínum um 1911, en síðar varð hann formaður á báti föðurs síns. Sjálfur eigpaðist hann bát um 1930 og gerði hann út til ársins 1942. Eins og títt var um Austfirðinga á þeim árum fór Hermann oft með bát sínum til Hornafjarðar að vetrarlagi og réri þaðan fram eftir vori. Útgerðar-ár Hermanns voru oft erfið, enda heimskreppan í al- gieymingi, og þurfti meira en meðalmenn til að berjast við þau vandamál, án þess að brotna. Á árinu 1942 flutti Hermann með fjöl- skyldu sína frá Hánefsstöðum inn á Seyð- isfjörð og voru honum skjótlega falin ýmis trúnaðarstörf, enda maðurinn bæði vel gef- inn og með eindæmum samvizkusamur. Ekki verða öll hin margvíslegu störf hans rakin á þessum vettvangi, heldur reynt að nefna þau helztu, er að sjávarútveginum og Fiskifélaginu sneru. Munu þau og hafa verið honum afar hugleikin. Hann var einn af stofnendum Fiskideildarinnar á Seyðis- firði og formaður hennar um meira en tuttugu ára skeið. Hann tók við starfi er- indreka Fiskifélagsins austanlands á ár- inu 1959 af Árna bróður sínum og gegndi því til dauðadags. Þá átti hann sæti á all- mörgum Fiskiþingum. 1 sambandi við öll þessi störf fór ekki hjá því, að náið samstarf tækist milli Her- manns og stjórnar og starfsfólks Fiskifé- lagsins. Var þetta samstarf hið ánægju- legasta. Lagði Hermann oft á sig mikið erfiði við útvegun ýmissa mikilvægra upp- lýsinga, er komið gátu útveginum að gagni. Persónuleg kynni tókust milli okkar Her- manns skömmu eftir að ég réðst til Fiski- félagsins á árinu 1954. Jukust þessi kynni mjög eftir að hann tók við starfi erind- reka. Tókst með okkur góð vinátta og hið bezta samstarf. Er ég heimsótti hann skömmu fyrir andlátið hnigu hugsanir hans mjög til Fiskifélagsins og verkefna þess. Er gott að vinna með slíkum mönn- um. Eftirlifandi konu Hermanns, Guðnýju Vigfúsdóttur, svo og öðrum aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Már Elísson. t---------------------—--------—----- Erlendar fréttir Frá Bretlandi Vexlir af lámnii. Brezka fiskimálastofnunin White Fish Author- ity, sem m.a. hefur með að gera ýmsar lánveit- ingar til brezka fiskiðnaðarins, hefur nýlega sett nýjar reglur um vexti af veittum lánum sem hér segir: Af lánum til fiskiskipa minni en 140 fet að lengd, svo og til kaupa á nýjum vélum og tækjum, innheimtast 7%% vextir ef lánað er til allt að fimm ára, en 7j4,% vextir ef lánað er frá 5 árum til allt að 20 ára. Fish Trades Gazette.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.