Ægir - 15.05.1968, Side 15
ÆGIR
173
5- mynd. Mánaðasveiflur á afla á togtíma og hlut-
falli kvendýra i aflanum á tímabilinu maí—ágúst á
samanteknum áruniun 1963—1967 við Suðausturland.
Monthly variations in catch per trawling hour and
Proportion of females in the catch over the period
May to August during the years 1963—1967 at South-
east Iceland.
sér stað á tímabilinu maí—ágúst á afla á tog-
túna og hlutfalli kvendýra við Suðvesturland
a samanteknum árunum 1962—1967. Er
veiði yfirleitt mest í maí, en fer minnkandi
þegar líður á sumarið. Er meðalaflinn á tog-
tíma á árunum 1962—1967 89 kg í maí, en
ödnnkar þegar líður á vertiðina og nær lág-
fliarki í ágúst 56 kg. Samtimis eykst hlutfall
kvendýra úr 6% í maí í 27% í ágúst.
5. mynd sýnir mánaðarsveiflur á afla á
togtíma og hlutfall kvendýra við Suðaustur-
land á samanteknum áruntnn 1963—1967. Á
þessum svæðum hefur veiði einnig verið mest
í mai eða 115 kg á togtima, en smám saman
niinnkað í 57 kg í ágúst. Einnig hefur verið
aukning á hlutfalli kvendýra úr 5% í maí í
14% í ágúst.
Upplýsingar frá svæði 169 eru heldm’
6. mynd. Sókn eftir mánuðum á helztu veiðisvœð-
unum árin 1962—1967.
Fishing effort (1000 trawling hours) by months on
the main areas during 1962—1967.
ófullnægjandi, en gefa þó til kynna, að sama
fyrirhæri sé þar einnig að finna.
öll þau ár, sem hér eru tekin saman, sýna
í meginatriðum þessi sömu einkenni nema
hvað meðalafli á togtíma hefur minnkað og
meðalhlutfall kvendýra í aflanum aukizt á
tímabilinu 1962—1967 eins og áður var rætt
(2. og 3. mynd). Sókn er fremur lítil í
maí, en eykst stórlega í júní (sjá 6. mynd).
Stuðlar þetta að hinni áberandi minnktm,
sem verður á afla á togtima í júní miðað við
maí. Sú staðreynd, að hlutfall kvendýra í afl-
anirni eykst í samræmi við þá lækkun sem
verður á aflamagni á togtíma frá maí til
ágúst, styður, að um áhrif frá veiðunum fyrri
hluta sumars sé hér að ræða. Þannig getur
mikil sókn í júní og júlí valdið aukningu á
hlutfalli kvendýra í aflanum, sem nær há-
marki í næsta mánuði á eftir eða ágúst.
Vitað er, að eðlilegar sveiflur eiga sér stað
á hlutfalli kvendýra í aflanum. Thomas og
Figueiredo (1965) hafa sýnt fram á, að hlut-
fall kvendýra er mun hærra yfir sumarmán-
uðina en á öðrum árstímum á miðunum við
Skotland. O’Riordan (1964) skýrir frá svip-
uðu fyrirbæri á miðunum við Irland. Fellst
skýringin í því, að í maí klekjast leturhum-
arlirfur út á þessum slóðum, en eins og áður
var vikið að veiðist lítið af kvendýrum með-
an eggin eru að þroskast og hrygnumar lifa