Ægir

Volume

Ægir - 15.05.1968, Page 19

Ægir - 15.05.1968, Page 19
ÆGIR 177 til 30. sept. n. k. eins fljótt og það telur fært.“ Hinn 8. maí varð síldarleitarskipið m/s Hafþór vart nokkurrar síldar um 350—380 sjómílur austur af landinu. Stóð síldin á 120—200 faðma dýpi en kom þó upp á 12— 20 faðma skamma stund um lágnættið. íslenzku síldveiðiskipin fóru ekki á síld- veiðar fyrr en um mánaðamótin maí til júní, að undanteknu einu skipi, m/s Reykjaborg, sem fór á veiðar hinn 19. maí. Fékk skipið urn 70 tonn 150 sjómílur NA af Færeyjum hinn 26. maí og landaði afl- anum í Færeyjum. Skipstjóri var Haraldur Ágústsson. M/s Harpa RE 342, skipstjóri Árni Gíslason, landaði fyrsta aflanum, 265 tonn- á Seyðisfirði hinn 3. júní. Hafði síldin veiðzt um 0 gráðu lengdarbauginn frá 65°40' til 67°45' N br. Aflinn fékkst á 2 úögum. Átta færeysk síldveiðiskip búin hring- nót og kraftblökk stunduðu síldveiðar í niaímánuði við Færeyjar og á þeim slóðum, sem íslenzku síldarleitarskipin höfðu orðið síldar vör, en öfluðu lítið eða um 300 tonn a skip að meðaltali í maímánuði og var síldin mjög mögur. Sannaðist því af reynslunni að það niyndi hafa verið óhagstætt fyrir íslenzka síldveiðiflotann að fara fyrr á veiðar en gert var. Helmingi minni afli samfara mikilli verðlækkun. Alls nam bræðslusíldarveiðin á djúpmið- um NA af landinu og úti af Austfjörðum, er landað var á íslandi: 293.182 tonnum á móti 605.676 tonnum 1966. Framleiðsla síldarlýsis og síldarmjöls alls í landinu nam: Síldarlýsi: Síldarmjöl Árið 1967 65.300 tonn 75.600 tonn — 1966 120.000 — 134.500 — Útflutningsverðmæti síldarlýsis og síld- armjöls: Árið 1967 um kr. 777 milljónir — 1966 um kr. 1.700 — Útflutningsverðmæti bræðslusíldaraf- urðanna, síldarlýsis og síldarmjöls, hefur þannig rýrnað um rúmlega 54 af hundraði frá árinu 1966 til ársins 1967, samfara því sem kostnaðurinn við síldveiðarnar og vinnsluna í landi hefur vaxið verulega. Þar sem saltsíldarframleiðslan fór einn- ig minnkandi varð um stórkostlegan halla- rekstur að ræða hjá síldarútveginum á sjó og landi. Áhrifanna af þessum gífurlega taprekstri síldarútvegsins gætti í afkomu þjóðarbúsins í heild og átti mikinn þátt í því áð auka greiðsluhalla landsins í við- skiptum við útlönd. Bræðslusíldarverðið. Framkvæmdastjóri og stjórn Síldar- verksmiðja ríkisins hafði áætlað að unnt myndi vera að greiða kr. 1,00 fyrir hvert kíló bræðslusíldar, ef fellt væri niður um helmingur af lögleyfðum fyrningar af- skriftum, en með því að fella niður allar fyrningar afskriftir kr. 1,10 fyrir kílóið. Samkomulag um verðið varð ekki í Verð- lagsráði sjávarútvegsins. Hinn 31. maí úrskurðaði yfirnefnd Verðlagsráðsins með oddaatkvæði for- stjóra Efnahagsstofnunarinnar, Jónasar Haralz, og með atkvæðum fulltrúa sjó- manna og útvegsmanna en gegn atkvæðum fulltrúa verksmiðjanna, að verð bræðslu- síldar frá 1. júní til 31. júlí skyldi vera kr. 1,21 fyrir kílóið. Síðar var þetta verð framlengt frá 1. ágúst til 30. september og síðan frá 1. októ- ber til áramóta. í aprílmánuði 1967 ákváðu Norðmenn bræðslusíldarverðið N. kr. 22,50 fyrir hektólíter miðað við 18% fitu. Er þetta verð sem næst Isl. kr. 1,42 fyrir kílóið reiknað með gengi ísl. krónunnar fram til 25. nóv- ember s. 1. Hinn 10. okt. lækkuðu Norð- menn verðið niður í N. kr. 14,29 fyrir

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.