Ægir

Volume

Ægir - 15.05.1968, Page 20

Ægir - 15.05.1968, Page 20
178 Æ GIR hektólíter éða í sem næst 90 aura íslenzka fyrir kílóið. Var þetta lækkun frá vori til hausts 1967 um 36,5% og ef miðað er við árið 1966 um 57%. Mjöff mikill taprekstur hjá verksmiðjunum Hjá síldarverksmiðjunum hér á landi varð um mjög mikinn taprekstur að ræða, þrátt fyrir lækkun bræðslusíldarverðsins. Þannig nemur tap Síldarverksmiðia ríkis- ins auk fyrninga kr. 33.647.971,01 á s. 1. ári og er það langóhagstæðasta árið í rekstri verksmiðjanna á 37 ára tímabili. Upp í þetta tap hefur Síldarverksmiðj- um ríkisins nú veri'ð greiddar kr. 8.289,- 966,00 úr gengishagnaðarsjóði, sem mynd- aðist við gengisbreytinguna í vetur. Styrkleikahlutföll íslenzku og norsku síldarinnar. I skýrslu Hafrannsóknastofnunarinn- ar, sem undirrituð er af Jakobi Jakobssyni hinn 28. apríl s. 1., telur hann styrkleika- hlutföllin í síldaraflanum norðanlands og austan hafa verið þessi á undanförnum ár- um: Ár Islenzk síld Norsk síld 1962 .. ... 53 % 47 % 1963 . . ... 29 % 71 % 1964 . . . . . 13 % 87 % 1965 . . .. . 6,5% 93,5% 1966 . . 3 % 97 % 1967 . . . . . 0,8% 99.2% Rannsóknir islenzku fiskifræðinganna benda eindregið til þess, að síld sú, sem veiðist á þessu ári NA og A af landinu muni verða nær eingöngu af norskum stofni. Þátttaka í veiðunum. Alls tóku þátt í veiðunum 148 skip á móti 186 skipum 1966. 20 skip stunduðu veiðar nær eingöngu sunnan og SV lands. Þrjú þeirra lönduðu þó síldarafla frá Hrollaugseyjum á Aust- fjörðum, en þrjú fengu engan afla. Alls stunduðu því 168 skip veiðar í lengri eða skemmri tíma á móti 205 skipum 1966. 67 skip héldu sig eingöngu á NA og A slóð- um, en 84 skip fengu einhvern afla á báð- um aflaslóðunum. Heildarsíldveiðin. Hér er talin síld, sem landað var á höfn- um frá Bolungavík norður um land til Djúpavogs og bræðslusíld flutt með e/'s Síldinni til Reykjavíkur: Ár: 1965 1966 1967 1 bræðslu, tonn 544.551 605.677 293.182 Uppsaltaðar tunnur . 403.961 383.815 317.656 Austansíld söltuð sunnanlands 6.765 1 frvstingu, uppmæld- ar tunnur 57.892 51.428 27.611 Útflutt síld ísuð, upp- mældar tunnur ... 22.263 7.917 2.805’ Landað beint úr veiði- skipum erlendis Veiðisvæði fyrir Austfjörðum, við Færeyjar og í Norð- ursjó, tonn ...... 7.801 *) Þessi tala mun ekki vera nákvæm. Móttekin bræðslusíld hjá einstökum verksmiðjum árið 1967, talin í tonnum: Síldarverksmiðjur rikisins, Siglufirði .. 55.703 1) —„— —- Húsavík .... 2.892 —„— — Raufarhöfn . 42.078 —„— — Seyðisfirði . 45.998 —— Reyðarfirði . 5.619 2) 152.290 Hraðfrystihús Ólafsfjarðar, Ólafsfirði .. 1.307 Síldarbræðslan h/f, Dalvik .............. 1.052 Síldarv. Akureyrarkaupst., Krossanesi . 7.237 Síldarverksmiðjan, Þórshöfn ............. 2.578 Síldarverksmiðjan h/f, Vopnafirði ...... 15.029 Sildarverksmiðjan, Borgarfirði eystra .. 181 Hafsíld h/f, Seyðisfirði ............... 22.921 Síldarvinnslan h/f, Neskaupstað ........ 32.033 Hraðfrystihús Eskifjarðar h/í, Eskifirði 16.120 Fiskimjölsverksmiðjan, Fáskrúðsfirði .. 6.656 Saxa h/f, Stöðvarfirði .................. 2.557 Síldariðjan h/f, Breiðdalsvík ............. 796 Búlandstindur h/f, Djúpavogi ............ 2.327 Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan, Rvík 28.183 3) Einar Guðfinnsson, Bolungavík............ 1.700 Samtals 292.967 4) 1) Þar af flutti m/s Haförninn 52.062 tonn.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.