Ægir - 01.03.1970, Blaðsíða 7
ÆGIR
65
6) Þegar skipinu er snúið með vörpuna á
botninum, er hægt að nota togmælana
til að halda nægjanlegu togi á ,,slaka“
vírnum til að koma í veg fyrir að varp-
an verði óklár.
7) Þegar kastað er eða híft flýta togmæl-
arnir fyrir, með því að koma í veg fyrir
óþarfa notkun á spil-hemlum í köstum
og með því að í hífingu er hægt að halda
víratogi eins og meðan togað var, með
því að minnka togkraft á skrúfu þeg-
ar hífingarhraði spils er aukinn.
Það hefur lengi verið útbreiddur mis-
skilningur meðal togaraskipstjóra að nauð-
synlegt sé að halda fullum togkrafti á
skrúfu meðan híft er, til að varpan verði
ekki óklár og fiskur sleppi ekki. Þetta er
misskilningur, þar sem hraði skipsins ræð-
ur ekki hegðun vörpunnar, heldur eingöngu
hraði vörpunnar í sjónum. Togmælarnir
sýna að draga má 30—60% úr togkrafti
skrúfunnar þegar híft er. Jafnvel þannig
að skipið standi kyrrt í sjónum, en spilið
hífi vírana inn með fjögurra mílna hraða.
Með því að beita ekki skrúfunni á móti
spilinu má stytta hífingartímann verulega
og minnka slit á spili og veiðarfærum.
Þess skal að lokum getið að hliðstæðan
búnað er hægt að fá fyrir togbáta, drag-
nótabáta og rækjubáta.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum
um búnað þennan, er hægt að fá þær hjá
Tæknideild Fiskifélags Islands í Reykjavík.