Ægir - 01.03.1970, Side 8
66
ÆGIR
Gunnar Jónsson, fiskifræóingur: ^ Haf- og fiskirannsóknir
SJALDGÆFIR FISKAR
Á síðasta ári barst Hafrannsóknastofn-
uninni fjöldi fiska til greiningar og rann-
sókna. Fiskar sem höfðu talizt sjaldséðir
fóru að veiðast í stórum stíl, enda farið
að veiða á nýjum miðum og með nýjum
veiðarfærum. Þannig fengust ýmsar mjóra-
tegundir af grálúðumiðunum austanlands
og rækjuslóðum norðanlands. Þá flykktust
að okkur kræklar og hveljusogfiskar með
rækjuaflanum við Kolbeinsey.
Hér birtist listi yfir 23 fiskteg., allar
veiddar á Islandsmiðum. Af þeim munu
a. m. k. 12 eiga heimkynni sín í hafinu
við Island — mismunandi djúpt og fjarri
landi. Ástæðan fyrir því að þessir fiskar
veiðast ekki oftar en raun ber vitni mun
vera sú að ýmist eru þeir of smáir og
smjúga því venjuleg veiðarfæri auðveld-
lega eða þeir halda sig á slóðum þar sem
veiðar hafa lítt verið stundaðar. Þessir
fiskar eru t. d. rauóa sævesla, snarpi lang-
hali, kambliríslingur, dílamjóri, hálfberi
mjóri, tvírákamjóri, slcrautmjóri, fuórisk-
il' krækill, marhnýtiU, stóri sogfiskur og
hveljusogfiskur. Aðrir fiskar sem hér eru
nefndir, þ. e. stóri földungur, lýr, rauö-
serkur, brynstirtla, stóri bramafiskur,
sandhverfa og sennilega einnig skjótta
skata, hafáll, lúsífer, sædjöfull og surtla
eru flækingar annars staðar að.
1. Skjótta skata - Raja hyperborea Collett.
Þessi sjaldséða skötutegund veiddist í
leiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar á
r/s Hafþór þann 3. desember á 67°14'N
—19°15'V eða í námunda við Kolbeinsey.
Dýpi var 500 metrar. Lengd skötunnar
var 68 cm. Skjótta skata hefur áður veiðzt
á 860—1040 metra dýpi undan Norðaust-
urlandi.
2. Stóri földungur — Alepisaurus ferox
Lowe.
Þann 9. maí veiddi v/b Friðrik Sigurðs-
son ÁR í net á Selvogsbankahrauni 155
cm langan stóra földung.
3. Hafáll — Conger conger (L.)
I nóvember veiddi v/b Svanur RE hafál
á línu á 40—50 faðma dýpi 10 sjm NNV
af Garðskaga. Var þetta 108 cm langur
hængur. V/b Ólafía GK veiddi 127 cm lang-
an hafálshæng á línu útaf Grindavík þann
23. nóvember.
Það merkilegasta við þessa hafála var
að þeir voru báðir með fullþroskuðum
sviljum, en mér er ekki kunnugt um að
hafálar í því ástandi hafi veiðzt hér við
land fyrr.
4. Rauða sævesla — Ciliata septentrionalis
(Collett).
Þessi kaldsjávarfiskur hefur verið frem-
ur sjaldséður hér við land til skamms tíma
en virðist ætla að verða alltíður fylgifisk-
ur svörtuspröku og ætti að geta fylgt rækj-
unni á djúpmiðunum norðanlands þegar
farið verður að veiða hana.
V/b Snæfugl SU veiddi a. m. k. tvæi'
rauðu sæveslur s.l. sumar undan Austfjörð-
um. Var önnur 30 cm en hin 34 cm. R/s
Hafþór veiddi allmargar í námunda við
Kolbeinsey á 67°04'N—19°15'V og 67°14'
N—19°15'V. Sex fiskar voru mældir og
kyngreindir og voru allir hængar 12—26
cm langir.
5. Lýr — Pollachius pollachius (L.)
I byrjun *október veiddi b/v Júpíter 76
cm langan lý á Mýragrunni.
A