Ægir - 01.03.1970, Blaðsíða 10
68
ÆGIR
17. Marhnýtill — Cottunculus microps
Collett.
Fimm marhnýtlar hafa komið í leitirnar
á árinu. Þaraf veiddi v/s Snæfugl 4 útaf
Austfjörðum síðla sumars. Voru þeir 18,
21, 21 og 23 cm langir. Þá veiddi r/s Haf-
þór 1 marhnýtil þann 3. desember á 500
metra dýpi á 67°14'N—19015'V.
18. Stóri sogfiskur — Liparis liparis (L.)
Um miðjan janúar veiddi m/b Ver IS
tvo stóru sogfiska í rækjuvörpu útaf Bol-
ungarvík. Voru þeir 74 og 98 mm langir.
Þann 19. janúar veiddi m/b Haflína IS
stóra sogfisk 11 cm langan í rækjuvörpu
útaf Seljadal í Isafjarðardjúpi.
19. Hveljusogfiskur — Careproctus
reinhardti (Kroyer).
Upp úr maga svörtuspröku veiddri útaf
Austfjörðum s.l. sumar af v/s Snæfugli
kom 17 cm löng hveljusogfiskhrygna. R/s
I-Iafþór veiddi feikn af hveljusogfiski 2. og
3. desember við Kolbeinsey eða nánar til-
tekið á 67°04'N—19°15'V og á 67°14'N
—19015'V. Á'fyrri staðnum voru 12 mæld-
ir og voru þeir 8—13 cm langir en á síðari
staðnum voru 13 mældir og voru þeir frá
6.5—15 cm langir.
20. Sandhverfa — Psetta maxima (L.)
V/b Gissur ÁR veiddi 63 cm sandhverfu-
hrygnu útaf Ingólfshöfða 12. september.
Þann 4. nóvember veiddi v/b Ágúst Guð-
mundsson 47 cm sandhverfu 20 sjm NA
af Alviðruhömrum.
21. Lúsífer — Himantolophus grönlandicus
Reinhardt.
M/b Lómur KE veiddi 35 cm langan
lúsífer 8. apríl á 58 faðma dýpi 9 sjm. NV
af Stafnesi.
22. Sædjöfull — Ceratias holbolli Kroyer.
Þann 19. júlí veiddi v/b Kristjana KE
á. a. g. 80 cm langan sædjöful á 30—40
faðma dýpi á Iíælisvík. Var honum drösl-
að lifandi í land og hélt líftórunni í nokkra
daga í búri í Sædýrasafninu í Hafnarfirði.
23. Surtla — Linophryne lucifer Collett.
V/s Krossanes SU veiddi 30 cm langa
surtlu þann 7. apríl á 50 faðma dýpi í Með-
allandsbug (63°44'N—17°21'V).
SUMMARY
The following rare fishes were recor-
ded by the Marine Research Institute in
Reykjavik during 1969: Raja hyperborea,
Alepisaurus ferox, Conger conger, Mac-
roiurus berglax, Ciliata septentrionalis,
Pollachius pollachius, Beryx decadactylus,
Trachurus trachurus, Brama brama, Chiro-
lophis ascanii, Lycodes esmarki, L. eudi-
pleuostictus, L. rossi, L. seminudus, Artedi-
ellus evropaeus, Icelus bicornis, Cottun-
culus microps, Liparis liparis, Careproctus
reinhardti, Psetta maxima, Himantolophus
grönlandicus, Ceratias holbölli, Linophryne
lucifer.
ÚTGERÐARMENN — SKIPSTJÓRAR
AUTRONICA — SPENNUSTILLAR (TRANSISTOR)
AUTRONICA heldur speimunni stöðugri.
Eru fyrirliggjandi fyrir 110 V. og 220 V.
VARAHLUTA- OG VBÐGERÐAÞJÓNUSTA
EINKAUMBOÐ:
Laugavegi 15
Sími 116 20