Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1971, Blaðsíða 8

Ægir - 15.02.1971, Blaðsíða 8
34 ÆGIR Sjávarntvegnrinn 1970 IVolikrir forustumenn í sjdvarútvegi og fiskiðnaði gefa í þcssa og mestu hlöðuni statt gfirlit gfir árið sem leiðog ncða ástand og horfur. Loftur Bjarnason: Togaraútgerðin 1970. Framan af árinu 1970 horfði mjög vel um afla togar- anna. Fyrstu fjóra mánuði ársins jókst aflinn jafnt og þétt og nam aukningin rúm- lega eitt þúsund tonnum að meðal- tali á mánuði, mið- að við sömu mán- uði árið 1969. í maímánuði minnkaði aflinn skyndi- lega um eitt þúsund tonn miðað við maí- mánuð 1969 og hélzt svo það sem eftir var ársins, þannig að síðustu átta mánuðina var aflinn rúmlega átta þúsund tonnum minni en 1969. Þannig minnkaði ársaflinn um 4.250 tonn á árinu 1970 frá árinu 1969. Fjöldi togara var hinn sami og 1969, eða 22 talsins. Samkvæmt upplýsingum Fiskifélags Is- lands nam afli togaranna 1970 79.850 tonn- um á móti 84.100 tonnum 1969. Heildar- fjöldi úthaldsdaga var 7.332 á móti 7-416 árið 1969. Var því aflinn á síðasta ári 11.04 tonn á úthaldsdag á móti 11.24 tonnum 1969. Af heildaraflanum voru 19.170 tonn karfi á móti 21.935 tonnum árið áður. Af því magni var 14.200 tonnum landað heima á móti 18.500 tonnum 1969. Hins vegar nam allur sá afli, sem landað var heima 45-300 tonnum á móti 51.850 tonnum árið 1969. Á sama hátt nam aukning landana erlendis um 3.060 tonnum, voru 34.550 tonn á móti 31.490 tonnum árið 1969. Allar þessar tölur eru miðaðar við óslægðan fisk. En hér á eftir, þegar rætt verður um ís- fisksölur erlendis, er magn fisksins miðað við slægðan fisk með haus, nema karfa, sem ætíð er óslægður. Verðlag á ísfiskmörkuðunum í Bret- landi og Þýzkalandi var að meðaltali hærra á s.l. ári en 1969. En það í sjálfu sér skýr- ir þó ekki auknar sölur togaranna erlendis, þar sem allur tilkostnaður þar hefir jafn- framt hækkað. Þannig leiddu verkföllin innanlands á s.l. sumri til þess, að mörg- um togaraförmum var landað erlendis, sem ella hefði verið landað hér á landi. Verk- föllin náðu til allra löndunarhafna togar- anna hér- Á árinu 1970 fóru togararnir alls 182 söluferðir með ísfisk til Bretlands og Þýzkalands (157 ferðir 1969) og seldu þar 27.535 tonn (26.060 tonn 1969) fyrir 559.4 millj. króna (453.5 millj. kr. 1969). Var meðalverðið kr. 20.32 hvert kg. (kr. 17.40 hvert kg 1969). Til Bretlands fóru togararnir 45 sölu- ferðir með 7-044.0 tonn (8.519.7 tonn árið 1969) sem seld voru fyrir 134.7 millj. króna, og reyndist meðalverðið kr. 19.12 hvert kg (kr. 15.95 hvert kg 1969), og til Þýzkalands fóru togararnir 137 söluferðir með 20.480.8 tonn (17.540.7 tonn 1969), sem seld voru fyrir 424.7 millj. króna og reyndist meðalverðið kr. 20.73 hvert kg (kr. 18.10 hvert kg 1969. Hér ber þess þó að gæta, að síðla árs 1969 var gengi vest- urþýzka marksins hækkað um 8.5% og ef meðalverðlag ársins 1969 hefði verið reikn- að á hinu nýja gengi, hefði það verið kr. 18.92 hvert kg).

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.