Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1971, Side 14

Ægir - 01.03.1971, Side 14
56 ÆGIR NÝTT FISKISKIP I desember s.l. var nýju stálfiskiskipi hleypt af stokkunum hjá Stálvík h.f. í Garðahreppi og hlaut það nafnið Arnfirð- ingur II GK 412. Skipið er um 105 brl. að stærð, sér- staklega teiknað til togveiða auk línu- og netaveiða. Aðalvélin er af Caterpillargerð 565 hö. Ulstein gír og skiptiskrúfa. I reynsluför reynd- ist ganghraði skips- ins 11.5 sjóm. Skipið er búið öllum full- komnustu fiskleitar- og siglingatækjum, má þar nefna Simrad Asdic og dýptarmæli, Kelvin Hughes Radar (64 mílna), Loran, miðun- arstöð, talstöð og Sharp sjálfstýringu. Lest skipsins er búin fullkomnum kæliút- búnaði, auk þess er hún sérstaklega gerð fyrir kassafisk. Togspil er smíðað í Véla- verkstæði Sig. Sveinbjarnarsonar h.f. og er 16 tonna. Eigandi skipsins er Arnarvík h.f., en framkv.stj. þess er Hermann Kristjáns- son. Ægir óskar eiganda til hamingju með hinn nýja farkost. THE BELFAST ROPEWORK COMPAMY LTD., Belfast, IMoróur-írlandi. Framleiða allskonar kaðla, botnvörpugarn, netja- garn, seglgarn, bindigarn, fiskilínur, botnvörpur o. fl., úr manillu, sísal, grasi, mjúkum hampi, Teryl- ene, Nylon og öðrum þekktum gerfiefnum. BELFAST-verksmiðjan er stærsta fyrirtæki heims- ins í sinni grein, og hefur selt framleiðsluvörur sín- ar til Islands í áratugi. Einkaumboðsmenn: V. Sigurðsson & Snæbjörnsson h. f. ÆGIR rit Fiskifélags íslands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er kringum 400 síður og kostar 300 kr. Gjalddagi er 1. júlí. Afgreiðslu- sími er 10501. Pósthólf 20. Ritstjóri Már Elísson. Prentað í lsafold.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.