Ægir - 15.02.1974, Síða 11
Kynning í skólunum á sjómannsstarfinu.
A síðasta Fiskiþingi reifaði Þorsteinn Gísla-
s°n þá hugmynd, sem hann hefur manna mest
lagt lið, að tekin væri upp starfsfræðsla fyrir
sjávarútveginn í skólum. Þorsteinn hefur sjálf-
ur reynslu af þeirri starfsemi, þar sem hann
hefur farið í nokkra skóla, og messað þar yfir
krökkunum og sýnt kvikmyndir. Þetta var
vinsælt bæði af skólastjórum og nemendum.
hað þyrfti ekki að vera mjög kostnaðarsamt
að senda menn á nokkra fjölmennustu staðina,
°g aðallega yrði starfið í Reykjavík, Akureyri,
°g Kópavogi, þar sem unglingarnir þekkja lítið
til þessa atvinnuvegar. Það væri sennilega
bæði peningaeyðsla og tímaeyðsla að senda
nienn til Vestmannaeyja, ísafjarðar eða Norð-
fjarðar til að lýsa sjómannsstarfinu fyrir ung-
'ingum á þessum stöðum.
Það er eitthvert hrafl orðið til af starfs-
Jxæðslukvikmyndum úr sjávarútvegi, sem
mætti sýna með erindunum.
^að háir okkur þar, að kvikmyndatökumenn
°kkar virðast enn ekki ráða yfir þeirri tækni
eða harðneskju, sem þarf til að taka myndir
að vetrarlagi úti á miðunum og í öllum veðr-
Um og við misjafnar aðstæður, heldur ríkir
alfarið sól og sumar í þeim myndum íslenzk-
Um, sem ég hef séð. Brezkir kvikmyndagerð-
armenn munu afturámóti hafa tekið hér á
Islandsmiðum myndir að vetrarlagi og veðrið
ekki háð þeim. Hvað skyldu slíkir menn kosta?
Kfeyting á hefðbundnu kennsluaðferðinni.
Sverrir Hermannsson, alþ.m. hefur látið í
ijós við Fiskifélagið þá hugmynd, að um borð
1 hin nýju skutskip, sem flest hafa aukakojur,
sem þau þurfa ekki að nýta með núverandi
mannfjölda um borð, sé lærlingum lofað að
vera. Að sumarlagi ætti þetta að vera vel ger-
|egt og hægt að hugsa sér margskonar fyrir-
komulag, til dæmis, að viðvaningarnir væru
matvinnungar og fengu einnig einhverja smá-
yru til að örva þá. Kostnaðinum mætti dreifa
mður á mai'ga aðila, svo að hann yrði engum
1 ufinnanlegur.
^ólaskipshugmyndin.
^essi hugmynd er ekki ný af nálinni en hún
er dýr og það hefur staðið framkvæmdinni
ryrir þrifum.
Olafur Ólafsson, útgerðarmaður á Seyðis-
firði og mikill áhugamaður um fræðslumál
sjómanna, hefur nú hreyft við hugmyndinni á
þann veg, að útgerð skólaskips yrði tengd sjó-
vinnunni við gagnfræðaskólana. Það sýnist nú
í fljótu bragði ekki þurfa að fylgja því yfir-
þyrmandi kostnaður, að ríkið ræki liðlegan
bát, sem færði sig á milli staða og nemendum
gæfist kostur á að fara út með honum og sjá
með eigin augum helztu veiðiaðferðimar.
Þetta þarf ekki að vera stórt skip, því að bát-
urinn þyrfti ekki að róa til hafs og hann gæti
sætt veðri og því verið að alla veturna.
Ný fiskiskip
Framhald af bls. 60.
Netsjá: Furuno FNR-200, þráðlaus með
hitamæli.
Talstöð: Simrad TA3/RW 2, 100 W, D.S.B.
Örbylgjustöð: Robertson.
Sjálfstýring: Thrige B 2.
Skipstjóri á Faxaborg GK er Guðmundur
Gunnarsson, og 1. vélstj. Bjarni Snæland Jóns-
son. Framkvæmdastjóri útgerðarinnar er Hall-
dór Hjartarson.
Nótaviðgerðir
í Noregi
Við yfirförum og gerum við
hvers kyns nætur og troll.
Ennfremur setjum við upp ný
veiðarfæri og höfum troll- og
snurpuvír á lager, ásamt öllum
gerðum af tógi.
Við tökum að okkur að geyma
varanætur. Höfum einnig til leigu
tvær hringnætur í fyrsta flokks
ástandi.
Þjónusta allan sólarhringinn.
EGERSUND TRAWLVERKSTED
Verkstæðissími 91-695 og 91-520.
Heimasími Kaare Mong 91-681.
Skrifstofan sími 91-219.
Egersund, Noregi.
ÆGIR — 47