Ægir - 15.11.1974, Qupperneq 27
þar fyrir ofan er brú (stýris-
hús) skipsins.
NÝ FISKISKIP
Hér fer á eftir lýsing af
slcuttogaranum Suðumesi KE 12,
sem keyptur var notaður til
landsins snemma á þessu ári, svo
og 20 rúmlesta tréfiskiskipi,
Haftindi HF 123, nýsmíði nr. 2
hjá Básum h. f.
Ægir óskar eigendum svo og
áhöfnum til hamingju með skip-
in.
Suðurnes KE 12
fiskmóttaka og stýrisvélar-
rúm aftast.
Fremst á efra þilfari er
lokaður hvalbakur, en þar fyr-
ir aftan er togþilfarið. Þilfars-
hús (síðuhús) eru s. b. - og
b. b. - megin á togþilfari. I
hvalbak eru íbúðir. Hvalbaks-
þilfar nær aftur að skipsmiðju
en aftast á þvi er tveggja
hæða þilfarshús. Á neðri hæð
eru íbúðir fyrir yfirmenn, en
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er MAK,
gerð 8M 451 AK, 1500 hö við
375 sn/mín. Vélin tengist
gegnum kúplingu skipti-
skrúfubúnaði frá Hjelset, gerð
4 RKT/60. Skrúfan er 3ja
blaða, þvermál 2120 mm.
Framan á aðalvél er 200
KW jafnstraumsrafall fyrir
togvindu skipsins.
19. marz s. 1. kom til lands-
ins skuttogarinn Suðurnes KE
12. Skuttogari þessi, sem er
eign Útgerðarfélagsins Suður-
ness h. f. Höfnum, var keypt-
ur notaður frá Noregi og hét
áður Vároy. Skipið var byggt
árið 1969 hjá A/S Storviks
Mek. Verksted, Kristiansund,
smíðanúmer 36.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt skv. reglum
Det Norske Veritas og fl'okk-
að +1A1, Stern Trawler, ICE
C, +MV. Skipið er skuttogari
með tveimur þilförum stafna á
milli og skutrennu upp á efra
þilfar.
Undir neðra þilfari er skip-
inu skipt með 4 vatnsþéttum
þverskipsþilum í eftirtalin
rúm, talið framan frá: Stafn-
hylki; hágeymir fyrir sjókjöl-
festu; fiskilest, en undir
henni eru botngeymar fyrir
brennsluolíu eða sjókjölfestu
(skiptigeymar); vélarúm og
aftast skuthylki fyrir fersk-
vatn.
Á neðra þilfari eru framan-
frá talið, keðjukassar, íbúðir,
f iskilest (milliþilf arslest),
vinnuþilfar (aðgerðarþilfar),
Rúmlestatala ....................... 299 brl.
Mesta lengd........................ 44.38 m
Lengd milli lóðlína .............. 38.50 m
Breidd ............................. 9.20 m
Dýpt að efra þilfari ............... 6.50 m
Dýpt að neðra þilfari............... 4.30 m
Djúprista (KVL) ................... 4.00 m
Burðarmagn (djúprista 4.00) . . 310 t
Lestarrými (undir n. þilfari) .... 310 m'i
Lestarrými (milliþilfar) ............ 230 m'1
Brennsluiolíugeymar ................. 140 m3
Ferskvatnsgeymar ..................... 33 m3
Ganghraði (venjulegur) .............. 12 hn.
Æ GIR — 349