Ægir

Árgangur

Ægir - 15.11.1974, Blaðsíða 29

Ægir - 15.11.1974, Blaðsíða 29
Haftindur HF 123 11. október s.l. afhentu Bás- ar h.f. Vestmannaeyjum ný- smíði nr. 2, 20 rúmlesta eik- arfiskiskip, sem hlaut nafnið Haftindur HF 123. Básar h.f. hafa haft aðsetur í Hafnar- firði, þar sem smíði skipsins fór fram. Snemma á þessu ári afhenti stöðin sitt fyrsta fiskiskip, Viðar ÞH 17, (sjá 6. tbl. 1974), og eru þessi tvö fiskiskip byggð eftir sömu teikningu, nema hvað þetta skip er 10 cm dýpra. Eigandi skipsins er Karel Karelsson Hafnarfirði og er hann jafn- framt skipstjóri. Aðalvél er frá Cummins, gerð NH 250, 200 hö við 1800 sn/mín, tengd niðurfærslu- gír frá Twin Disc, gerð MG 509, niðurfærsla 3.83:1 og skrúfubúnaði frá Newage. Skrúfa er 3ja blaða með fastri stigningu, þvermál 990 mm. Framan á aðalvél er Marco aflúttak fyrir vindu- dælu, rafal o. fl. Rafall á að- alvél er frá Alternator h.f., 7.0 KW. Hjálparvél er frá Samofa, gerð 85, 7,2 hö við 1800 sn/ mín og við vélina er 3 KW raf- all. Rafkerfi skipsins er 24 V jafnstraumur. Stýrisvél er frá I. T. Radio. Vindubúnaður er frá Véla- verkstæði Sig. Sveinbjörnsson- ar h.f. og er vökvaknúinn (há- þrýstikerfi). Togvinda er bú- ir tveimur tromlum og tveimur koppum. Togátak vindu á mibja tromlu (380 mm°) er um 1.6 t og tilsvar- andi vírahraði um 80 m/mín. Línuvinda hefur 2,0 t togátak og bómuvinda 0.5 t. Fyrir vindur er ein tvöföld háþrýsti- dæla, Denison TDC 20—17, drifin af aðalvél gegnum Marco úttak. Færavindur eru rafdrifnar frá Elektra, sam- tals 7 stk. Helstu tæki í stýrishúsi eru: Ratsjá: Furuno, FRS 48, 48 sml. Sjálfstýring: Sharp Skipper. Dýptarmælir: Simrad EQ 38. Fisksjá: Simrad CI Talstöð: ISR, gerð RT 101, 200 W S. S. B. Rúmlestatala ....................... 20 brl. Mesta lengd ..................... 14.66 m Lengd milli lóðlína.............. 13.20 m Breidd (mótuð) ................. 3.94 m Dýpt (mótuð).................... 1.70 m. Lostarrými ......................... 18 m3 Brennsluolíugeymar ............. 1.80 m8 Ferskvatnsgeymir ............... 0.60 m3 Ganghraði (reynslusigling)...... 9.5 hn. Stór botnvarpa Framhald af bls. 333. vélarkrafti, hafði verið mjög hrifinn af Stelluvörpunni og fljótur til að taka hana í not- kun, og hann var áfjáður í að reyna Baltavörpuna. Hann fór svo út í apríl á þessu ári með Baltavörpuna ásamt sinni venjulegu vörpu, og enn er það ekki nefnt í greininni í Fishing News International, hvort það var stór Granton- varpa eða Stelluvarpa, nema hvort tveggja hafi verið. Aflinn varð 680 tonn í veiði- ferðinni og þar af veiddust 200 tonn í Baltavörpuna og meðalafli í hali í hana var 4,3 tonn, og hún stóðst fyllilega samanburð hvað veiðni snertir við venjulegu vörpuna, en það var annað, sem vakti mikla at- hygii — það var ekkert rif- rildi á Baltavörpunni. Engin skýring er þó gefin á því fyr- irbæri. Af þeim tilraunum, sem hér hefur verið lýst, þykir mönn- um sýnt, að bráðlega muni komast í gagnið stór varpa, sem eigi eftir að njóta ekki minni vinsælda en Stellu- varpan gerir nú. Meiri reynsla af Baltavörpunni er þó talin nauðsynleg við raunhæfar fiskveiöar, áður en hún verði tekin í notkun á fiskiflotan- um almennt. Töflurnar, sem hér fylgja greininni um tilraunirnar og samanburð hinna þriggja nefndu vörpugerða með mis- munandi útbúnaði og dráttar- hraða, eru fróolegar til yfir- lits og glöggvunar á þeim áhrifum og þeim kröftum, sem verka á togveiðarfæri og þess vegna eru þær birtar til gam- ans, en ekki af því, að mönnum birtist í þeim ný speki. ÆGIR — 351

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.