Ægir

Árgangur

Ægir - 15.11.1974, Blaðsíða 28

Ægir - 15.11.1974, Blaðsíða 28
Hjálparvélar eru tvær Volvo Penta, gerð TMD—120 AK, 230 hö við 1500 sn/mín. Við aðra vélina er Stamford raf- all, 165 KVA, 3x380V, 50 Hz, en við hina er 145 KVA raf- all. Tvær DeLaval skilvindur eru fyrir smurolíu- og brennsluolíukerfi. Á aðalvél er ábyggð ræsiloftþjappa, en auk þess er rafdrifin Inger- soll Rand loftþjappa, afköst 16 m3/klst. móti 30 ato. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar. Hydroforkerfi, bæði sjó- og ferskvatns, er í skipinu og einnig ferskvatnsframleiðslu- tæki sem er frá Atlas, gerð AFGU—1, afköst 3 t á sólar- hring. Til upphitunar á fersk- vatni er geymir með 6 KW rafmagnselementi. Pælikerfi fyrir geyma er frá Sigurd Sor- um. Stýrisvél er rafstýrð, vökva- knúin, frá Frydenbo, gerð HS 20A. Vindubúnaður: Vindubúnaður skipsins er frá Achgelis Söhne og eru all- ar vindur rafdrifnar. Togvindan er drifin af 240 ha. jafnstraumsmótor. Vind- an er með 2 togtromlur (380 mma x 1300 mma x 1174 mm), 2 hjálpartromlur fyrir grand- aravíra og 2 koppa. Hvor tog- tromla tekur um 920 faðma af 3j4” vír. Meealtogátak vindu er 8 t og vírahraði um 120 m/ mín. Fyrir hífingar á vörpu eru tvær rafdrifnar hjálparvindur (gilsonvindur), staðsettar á síðuhúsum s. b.- og b. b,- megin á togþilfari. Hvor vinda hefur eina tromlu, togátak 5 t og vírahraði 20 m/mín. Aftast á togþilfari, s. b. - megin við skutrennu, er rafdrifinn 3 t kapstan fyrir pokalosun o. fl. Akkerisvinda er rafdrifin af gerðinni AWE 22/26 með 2 keðjuskífum og 2 koppum og er staðsett fremst á hvalbaks- þilfari. Skipið er búið netsjártæki með kapli og er vinda fyrir kapal staðsett á palli yfir skutrennu. Aftast í stýrishúsi eru stjómtæki fyrir togvindu og hífingarvindur. Átaksmælar frá Kelvin Hughes eru fyrir togvindu. Vinmiþilfar, fiskilestar: Vökvaknúin fiskilúga veitir aðgang að fiskmóttöku aftast á vinnuþilfari. Framan við fiskmóttöku eru 6 blóðgunar- kör og eru tvö færibönd upp í þau frá fiskmóttökunni. Þar fyrir framan eru aðgerðar- borð, en frá þeim fer fiskur- inn eftir færibandi að þvotta- vél og þaðan eftir öðru færi- bandi fram í lest. Loft í vinnuþilfari er ein- angrað og loftræsting fyrir vinnuþilfar er með rafdrifnum blásurum. Fiskilestar eru einangraðar fyrir -h 25 °C hitastig. Kæl- ing er í báðum lestum og mið- ast kælibúnaður við +1°C hitastig við +25°C útihita- stig. Kæliþjöppur eru tvær, afköst 9000 kcal/klst við -^-12°C uppgufunarhitastig. Kælileiðslur eru í lest, kæli- miðill Freon 22. Lestar eru gerðar fyrir fiskikassa. íbúðir: Ibúðir á neðra þilfari sam- anstanda af fjórum 2ja manna klefum. Á efra þilfari eru fremst matvælageymslur (ókæld, kæli- og frysti- geymsla), en þar fyrir aftan, s. b.-megin, einn 2ja manna klefi, eldhús og tveir matsal- ir, en b. b.-megin tveir eins manns klefar, tveir 2ja manna klefar, þvottaherbergi og þurrkklefi. í þilfarshúsi (aft- ast á hvalbaksþilfari) eru fjórir eins manns klefar fyrir yfirmenn, svo og salerni og sturtuklefi. Upphitun í vistaverum er með rafmagni og loftræsting með rafdrifnum blásurum. Rafeindatæki: Helztu tæki í stýrishúsi eru: Ratsjá: Decca RM 326, 48 sml. Ratsjá: Kelvin Hughes, gerð 18/9 64 sml. Miðunarstöð: Taiyo TD — A 163 Loran: Mieco 6811. Gyroáttaviti: Anschútz, gerð Standard IV. Sjáífstýring: Anschútz. Vegmælir: Bergen Nautik FDU. Dýptarmælir: Simrad EK 38 A. Dýptarmælir: Simrad EH 2E. Fisksjá: Simrad CA 2. Netsjá: Elac LAZ 17. Talstöð: Simrad TA3/RA2, 100 W D. S. B. Örbylgjustöð: ITT. Skipstjóri á Suðurnesi KE er Gunnar Hjálmarsson og 1. vélstjóri Páll Karlsson. Fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar er ívar Þórhallsson, 350 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.