Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 7

Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 68. ÁRG. 2. TBL. 1. FEBRÚAR 1975 Stefnumótandi ræða EFNISYFIRLIT: Stefnumótandi ræða 21 Hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Caracas 21. júní til 29. ágúst 1974. Eæða flutt af Hans G. Andersen, formanni íslensku sendinefnd- arinnar 22 Sjá varútvegurinn 197i: Bragi Eiríksson: Skreiðarframleiðslan 1974 25 Jónas Jónsson: P i skm j öl sf r amleiðsl- an 1974 27 Trygffvi Ólafsson: Þorskalýsisframleiðs- an 1974 29 Piskaflinn í ágúst og jan. — ágúst 1974 og 1973 30 Utfluttar sjávar- afurðir í desember 1974 og 1973 32 Aætlun um notkun rann- sóknaskipa árið 1975 35 Ályktanir 33. Fiskiþings 37 A tækjamarkaðnum: Autofisker, sjálfvirk færavinda 38 Ný fiskiskip: Margrét Þorvaldsdóttir S_T 95 39 . Brynjar ÍS 61 40 ÚTGEFANDI: FISKIFÉLAG fSLANDS HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI SÍMI 10500 RITSTJÓRN: MÁR ELlSSON (ábm.) JÓNAS BLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: GfSLI ÓLAFSSON PRENTUN: ÍSAFOLD Askriftarverð 1000 KR ÁRGANGURINN KEMUR ÚT hálfsmánaðarlega Á næsta ári eru 30 ár síðan Hans G. Andersen tók að starfa sem ráðunautur ís- lenzku ríkisstjómarinnar í landhelgismálum. Enginn íslenzkur embættis- maður hefur komið meira við sögu landhelgismálanna en hann. Eins og kunnugt er fórum við strax að hugsa okkur til hreyfings í þessum efnum, þegar við höfðum öðl- ast fullveldi og að lokinni styrjöldinni. Af því tilefni var svo Hans G. Andersen ráðinn til starfa vegna sérþekkingar í þjóðarrétti. Síðan hefur hann starfað þrotlaust að þessum málum enda mikilvægir at- burðir að ske með fárra ára millibili. (Landgrunnslögin, sem öll okkar barátta byggist á, voru sett 1948, síðan tók við hver útfærslan af annarri, sem allar hafa mætt mót- spyrnu og stundum mikilli, fyrst útfærslan 1950 fyrir Norðurlandi, þá 4 sjóm. út- færslan 1952, síðan 12 sjóm. útfærslan 1958, þá 50 sjóm. út- færslan 1972 og svo væntan- leg 200 sjóm. útfærsla 1975. En þetta eru aðeins merkja- steinarnir >og það hefur oft verið erfiður gangur milli þeirra. Ráðstefnur margar og seigdrepandi. Ævinlega hefur Hans G. Andersen setið þær, einn eða með öðrum. Síðasta alþjóðlega ráðstefnan, sem haldin hefur verið um land- helgismál var sú sem haldin var í Caracas á síðast liðnu sumri. Þar flutti Hans G. And- ersen í upphafi ráðstefnunnar stefnumótandi ræðu, þar sem hann setti fram í hnotskum hugsanlegar leiðir til að úr- lausn fengist á ráðstefnunni á þeim vandamálum, sem henni var ætlað að fjalla um. í þessari ræðu koma einnig fram allar okkar helztu rök- semdir fyrir aðgerðum okk- ar og skoðunum að því er lýt- ur að fiskveiðilöggjöfinni og auðlindalögsögunni almennt. Ritstjóra Ægis þótti tilhlýði- legt, að birta þessa yfirlits- ræðu nú, þar sem annar hluti ráðstefnunnar fer senn að hefjast. í næsta blaði verða birtar þrjár aðrar ræður Hans G. Andersens, þar sem hann fjallar nánar um einstaka þætti þessara mála.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.