Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 13

Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 13
Ástand og liorfur. Eins og fyrr segir er nú óseld skreið um 250/300 tonn, sem hæf er á ítalska markaðinn °S að minnsta kosti annað eins til Afríku, °S jafnvel meira því nokkurt magn hefur verið hengt upp í haust og vetur. Horfur á ítalíu tel ég vera þær að markað- unnn verður erfiður á næstu mánuðum, sér- staklega vegna þess að lítið hefur verið selt af skreið á markaðnum á ítalíu í haust og innflytjendur liggja með birgðir, sem munu endast fram á vor. Það ber að fara að með fyllstu gætni þegar verð er ákveðið til út- flutnings. Það er auðvelt að loka góðum markaði með of háu söluverði afurða. Gæða- eftirlitið ber að endurskoða og ef þetta tvennt er haft í huga þá getur Island haldið sinni rciarkaðsaðstöðu að því leyti sem efnahags- astand ítalíu leyfir hverju sinni. Það ber að þyta þennan markað eins og frekast er unnt. Islendingar hafa engin efni á því að kasta rá sér góðri markaðsaðstöðu með lélegu gæðaeftirliti og með of háu söluverði. Jónas Jónsson: ölsf ramleiðslan 1974 Ég get enn hafið þessa yfirlitsgrein með svip- uðum orðum og yfirlits- greinar mínar undanfar- in ár, að því leyti að fiskmjölsframleiðslan jókst enn að magni til árið 1974 frá árinu á undan, og fór nú yfir 100 þús. lestir. Aftur á móti urðu svo óhagstæð- ar breytingar á verðlagi á liðnu ári, að útflutn- ingsverðmætið varð heldur minna, þrátt fyr- !r þessa auknu framleiðslu, og ég er ekki jafnbjartsýnn í byrjun þessa árs og ég var í yrjun þess liðna. Það er langur vegur þar a> ems og ég mun gera grein fyrir hér síð- ar’ Þegar ég ræði um verðlagsþróunina. Það Xar og áður loðnumjölsvinnslan, sem olli rnagnaukningunni; hún jókst um tæpar 6. þús. estir, en þorskmjölsframleiðslan dróst sam- an um 600 lestir, hvalmjölsframleiðslan um tæpar 300 lestir og lifrarmjölsframleiðslan um álíka magn. Það athugist við lestur töflunnar um skipt- ingu framleiðslunnar, að í karfamjölstölunni er 704 lestir af makrílmjöli og í þorskmjöls- tölunni á annað hundrað lestir af steinbíts- mjöli. Tölurnar í svigum í töflunni eru fyrir árið 1973. Fiskmjölsframleiðslan 1974 (1973). Loðnumjöl ............... 68.033 (62.092) Þorskmjöl ............... 28.681 (29.278) Karfamjöl .............. 4.919 ( 4.919) Hvalmjöl ................. 1.592 ( 1.875) Lifrarmjöl ................. 260 ( 460) 103.425 (97.683) Fiskmjölsbirgðir voru í ársbyrjun um 1669 lestir, en í ársbyrjun nú um 16.596 lestir. Útflutningur fiskmjöls eftir tegundum 1974. Magnið talið í þúsundum lesta, en verðmætið í milljónum króna. Þorskmjöl Lestir 22.749 Verðmæti (millj. kr.) 881.2 Loðnumjöl 58.236 2.348.1 Karfamjöl 1.114 37.7 Hvalmjöl 500 13.9 Lifrarmjöl 223 7.1 Samtals 82.822 3.288 Skipting útflutnings á viðskiptalöndin. Lestir Verðmæti (millj. kr.) Danmörk 3.349 156.6 Svíþjóð 755 41.4 Finnland 4.642 217.9 Belgía 2.253 72.9 Bretland 11.214 406.0 Grikkland 512 17.3 Holland 403 13.7 Júgóslavía 3.727 159.0 Pólland 22.533 916.1 Sovétríkin 10.500 384.2 Ungverjaland 600 269.1 Austur-Þýzkal 5.000 20.6 Vestur-Þýzkal 17.084 601.5 Iran 250 11.7 Samt. magn og verðm. 82.822 3.288.0 Innanlandsnotkun 5.704 lestir Æ GIR — 27

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.