Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 8

Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 8
Hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Caracas 21. júní til 29. ágúst 1974 Ræða flutt af Itans G. Andersen, formanni sendinefndar Islands Hafréttarmálin eru enn í brennideplinum og munu verða áfram. Ægi þykir því enn tímabært að birta ræður þær, sem Hans (,. Andersen flutti á ráðstefnunni í Caracas í fyrra og birtist sú fyrsta hér, en þrjár aðrar munu birtast í næsta blaði. Herra forseti, Það er mér mikil ánægja að óska öllum sendinefndum, sem hér eru saman komnar, til hamingju með þann árangur er hingað til hefur náðst undir yðar frábæru forustu. Sá árangur lofar góðu um það, sem koma skal. Ég vil tjá sendinefnd Venezuela þakkir sendi- nefndar íslands fyrir hina miklu gestrisni og góðu starfsskilyrði, sem þessi ráðstefna nýtur hér. Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða hér um hugmyndir Hugo Grotius, John Selden eða Cornelius van Bynkershoek. Skoðanir þeirra lærðu og hátt- virtu manna voru afar þýðingarmiklar fyrir þeirra tíma og miklu lengur, en í dag verðum við að finna okkar eigin lausn með hliðsjón af raunsæju mati á vandamálunum eins og þau líta út í dag. Ef við höldum okkur við nútímaþróun má með sanni segja að varðandi lögsögu strand- ríkja yfir auðlindum sjávarsvæða megi greina milli þriggja þátta. í fyrsta lagi er þar um að ræða hið úrelta kerfi sem reynt var að lögfesta á Genfarráðstefnunum 1958 og 1960, þar sem að vísu voru viðurkennd yfirráð strandríkja yfir auðlindum á botni landgrunnsins og í honum, og reynt var að festa 12 mílna fisk- veiðimörk, en þá var ekki vilji fyrir hendi til að ganga lengra — ekki einu sinni varð- andi þjóðir eins og ísland, sem byggja af- komu sína á fiskveiðum. Þess skal getið að ís- land fullgilti engan af Genfarsamningunum af þessum sökum. í öðru lagi er svo um að ræða hugtakið efnahagslögsögu allt að 200 mílum sem nú þegar hefur fylgi yfirgnæfandi meiri- hluta þjóðanna. Óþarft er að lesa hér upp þau skjöl sem þetta sanna því að þeir sér- fræðingar sem hér eru saman komnir þekkja þau öll. Þeim hefur þegar verið lýst ítarlega af ræðumönnum sem talað hafa hér á undan og þau hafa verið til umræðu í undirbúnings- nefndinni. Sendinefnd Islands mun ræða þau frekar í nefnd þegar þar að kemur. Lioks er í þriðja lagi um það að ræða að þessi ráðstefna byggi starf sitt á efnahagslögsöguhugtakinu og komi því í samningsform. Að því er ísland varðar voru þegar árið 1948 sett lög um fiskveiðar á landgrunninu. Lög þessi eru byggð á þeim forsendum að hin eiginlega landhelgi skuli vera þröng vegna siglingafrelsis, en að utan hennar skuli vera víðtækari lögsaga yfir fiskveiðum, er nái yfir allt landgrunnssvæðið — það er að segja efnahagslögsaga þar sem um er að ræða all- ar auðlindir á þessu svæði sem vitað er um. Lög þessi hafa verið framkvæmd smám sam- an og eins og nú standa sakir eru fiskveiði- 22 — Æ GIE

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.