Ægir - 01.02.1975, Qupperneq 15
bændur eiga í miklum erfiðleikum og hefir
starfsemi þeirra dregizt mjög saman.
Framleiðsla á fiskmjöli í Perú árið 1974 er
talin hafa numið 840 þúsund lestum (var
1973 423 þús. lestir). Er þetta magn tæp-
lega helmingur af því, þegar framleiðsla
þeirra var mest. Engu að síður hefir salan
gengið treglega og hafa Perúmenn þurft að
fara mjög langt niður með verðið. Er nú talið,
að allmiklar birgðir séu óseldar hjá þeim.
Nakvæmar tölur um þetta er erfitt að fá.
Ekki verður annað sagt nú í byrjun loðnu-
vertíðar en að útlitið á mjölmörkuðunum sé
allt annað en glæsilegt.
Tryggví Ólafsson:
l'urskalýsisfranileiðslan 1974
A árinu voru
framleidd 3936 tonn
af þorskalýsi. Eftir-
farandi tafla sýnir
framleiðsluna í
tonnum undanfarin
8 ár og útflutning á
sama tímabili, enn-
fremur í hvaða
ástandi lýsið var út-
flutt:
1967
1968
1969
1970
1971
1972
1973
1974
w
[ Framleitt allar teg'. Útflutt meðalal. Útflutt fóðurl. Útflutt til herzlu Útflutt alls Notkun innanland:
4530 952 1650 249 2851 232
4575 944 1525 2834 5303 757
4564 853 1519 2325 4696 735
5403 1088 897 3360 5345 497
4216 901 642 2314 3857 223
4666 1251 837 1722 3810 247
4102 1343 732 3104 5179 223
3936 1576 729 916 3221 215
. ^au lönd sem keyptu hvað mest magn á ár-
voru Bandaríkin, Brasilía og Finnland.
eðalalýsi var selt til 28 landa og fóðurlýsi
1 7 landa. Rösk 250 tonn voru seld í smáum-
uðum, 3,5 kg og smærri. Birgðir í ársbyrj-
Un v°ru 587 tonn, en í árslok 1076 tonn.
Samkvæmt efnagreiningu Rannsókna-
s ofnunar fiskiðnaðarins var fituinnihald
lifrarinnar á vertíðinni 60% á svæðinu frá
Stokkseyri til Reykjavíkur að báðum stöðum
meðtöldum. Vítamín A innihald lýsisins var
svipað og mörg undanfarin ár. Hvað snertir
D-vítamíninnihaldið er það að segja að miklar
langtíma breytingar hafa þar átt sér stað.
Lýsi hf. hefur látið gera talsvert af vítamín D
rannsóknum í Bandaríkjunum á íslenzku
þorskalýsi allt frá árinu 1937, mest á árun-
um 1937 og fram yfir stríð, á þeim tíma sem
D innihaldið hafði áhrif á lýsisverðið. Þessar
rannsóknir sýna að frá því 1937 og fram yfir
stríð var D innihaldið á vetrarvertíð á Suð-
vesturlandi frá 250 ein. pr. grm. fyrri hluta
vertíðar og uppí 400 ein. seinni hlutann. Ann-
ars staðar kringum landið reyndist það vera
60—100 ein. á þessu tímabili. Á sama tímabili
var D innihaldið við Lófót í Noregi um 100
ein. pr. grm. Árið 1958 var D innihaldið á vet-
rarvertíð á Suðvesturlandi komið niður í 64
ein., 1964 var það 85 ein., 1965 90 ein., 1968
90 ein. og 1973 var það komið uppí 184 ein.
Engar skýringar munu vera til á þessum miklu
sveiflum. Lítið eða ekkert samræmi virðist
vera á milli A og D vítamíninnihalds lýsis-
ins.
Á slíkum verðbreytingatímum sem nú eru
ætlar enginn sér þá dul að spá inn í framtíð-
ina, sérstaklega ekki þegar um feitmeti er að
ræða, sem hefur lengi verið háð meiri verð-
breytingum en aðrar vörur. Það eru ekki mörg
ár síðan verð á búklýsi, til dæmis, fór niður
í £.30,- tonnið. Nokkuð hefur borið á lækkun
á búklýsi á síðustu vikum. Skammtíma sveifl-
ur eru tíðar á þessari vöru og ef til vill nær
verðið sér upp aftur. En ef verulegar lækk-
anir verða á næstu mánuðum, held ég að það
verði ekki vegna offramleiðslu í þetta sinn,
heldur af rýmandi kaupgetu í heiminum og
að sjálfsögðu hins háa núverandi verðs.
Lifrarlýsi, sérstaklega meðalalýsi, fer á
óskyldan markað og fer það eftir framleiðslu-
magninu á þessari lýsistegund hvort hægt
verður að halda verðinu uppi, en lækkandi
verð á feitmeti almennt hefur þó alltaf áhrif.
Útflutningur Noregs á meðalalýsi var á ár-
inu um 1000 tonn. Samkvæmt Fiskets Gang
var lifrarverð þar, umreiknað í ísl. krónur
miðað við gengi í júní 1974, kr. 9.28 pr. kg.
Útflutningur íslands á meðalalýsi var 1576
tonn. 'Lifrarverð hér á vertíðarlifur var kr.
15.- fyrir kg. en fyrir lifur framleidda í
nóvember og desember kr. 20.-.
ÆGIR — 29