Ægir - 15.04.1975, Qupperneq 10
Fr. hörpu-
diskur 357 114.9 505 177.4
Samtals 86.972 10.726.1 93.771 9.149.7
Ef hraðfryst loðna er dregin frá heildar-
útflutningsmagni hraðfrystra sjávarafurða s.
1. 3 ár, kemur greinilega í ljós hinn mikli
magnsamdráttur í útflutningi og framleiðslu
þorskfiskafurða umrætt tímabil.
Útflutningur frystra fiskflaka og blokka
hefur verið sem hér segir:
Smálestir:
1974 59.996
1973 63.799
1972 67.234
Á aðeins 3 árum hefur útflutt magn minnk-
að um 7.238 smálestir eða 10.8%. Er þetta
alvarleg þróun fyrir hraðfrystihúsin. Þess er
þó að vænta, að á næstu árum muni aukinn
afli vegna tilkomu hinna nýju skuttogara, er
landa heima, laga þessa mynd nokkuð.
Fryst fiskflök og fiskblokkir voru 75.9%
af útflutningi hraðfrystra sjávarafurða árið
1974 miðað við verðmæti, en árið áður 76,7%.
Útflutningur þessara afurða var 59.996 smá-
lestir að verðmæti 8.4 milljarðar kr. Helstu
markaðslönd voru:
% hlutdeild
miðað við
Lestir: M. kr.: verðmæti:
Bandaríkin 42.495 6232.6 76.6
Sovétríkin 14.375 1577.2 19.4
Bretland 883 101.8 1.3
Vestur- Þýzkaland 562 58.8 0.7
Hlutdeild Sovétríkjanna jókst verulega árið
1974 miðað við árið áður, en þá var það kom-
ið niður í 6.6% í þessum þýðingarmesta af-
urðaflokki hraðfrystra sjávarafurða í útflutn-
ingi Islendinga. Hlutdeild Bandaríkjanna
lækkaði úr 87.5% árið 1973 í 76.6% árið 1974.
Fyrr hefur verið vikið að hinni neikvæðu
verðþróun á fiskblokkum á bandaríska mark-
aðinum árið 1974. Án þess að farið skuli ná-
kvæmlega út í þessi mál, er rétt að vekja
athygli á, að hið háa verðlag á fiskblokkum
varaði ekki nema í mjög takmarkaðan tíma.
í ágúst 1973 var þorskblokkin komin í um lá
cent hvert pund og komst hæst í 82 cent i
nóvember 1973 — febrúar ’74, en féll niður í
76 cent í mars og var komin í 60 cent í júli
og 58 cent um áramótin 1974/75 og er þar
enn.
Minni hreyfingar hafa orðið til lækkunar a
frystum fiskflökum, en hefur þó gætt í verð-
lækkun á ýsuflökum.
Þá varð nokkur verðlækkun á verksmiðju-
framleiddum vörum úr fiskiðnaðarverksmiðj'
um í Bandaríkjunum s. 1. vor. Kom það ásamt
hækkandi framleiðslukostnaði niður á afkomu
fiskiðnaðarverksmiðja S. H. og S. í. S. 1
Bandaríkjunum. Áætla má að heildarvelta
Coldwater Seafood Corp. (S. H.) og Iceland
Products Ltd. (SÍS) hafi verið um $
millj. Var um nokkra aukningu að ræða fra
árinu 1973.
Þrátt fyrir erfitt ár 1974, ákvað stjórn
Coldwater að ráðast í byggingu frysti-
geymslu í Boston, Mass. Vegna aukinna um-
svifa fyrirtækisins og erfiðleika við að ut-
vega hagkvæmt geymslupláss fyrir söluafurð-
ir fyrirtækisins, var þetta óhjákvæmileg ráð-
stöfun.
Á yfirstandandi ári mun verða lögð rík
áhersla á aukna markaðsöflun fyrir hrað-
frystar sjávarafurðir hvar sem því verður við
komið af hálfu S. H. og S. í. S. Nýverið hafa
verið gerðir góðir samningar við innkaupa'
fyrirtækið Prodintorg í Moskvu, er felur 1 ser
sölu á verulega auknu magni til Sovétríkj'
anna í ár. Uppbyggingin heldur áfram ]
Bandaríkjunum í trausti þess að úr rætist i
framtíðinni. Sölustarfsemin þar hefur skila^
góðum árangri á liðnum árum og mun vaent'
anlega halda áfram að gera það í nánustu
framtíð. Vestur-Evrópa hefur verið tiltölU'
lega óhagstætt markaðssvæði fyrir hraðfryst'
ar sjávarafurðir á undangegnum árum sam'
anborið við Bandaríkin, Sovétríkin og Tékko-
slóvakíu. Þó hafa stundum opnast möguleik'
ar fyrir hagkvæmar sölur á litlu magni til
Bretlands og Vestur-Þýzkalands. Mikil óvissa
ríkir nú í fisksölumálum íslendinga og Norð'
manna í Vestur-Evrópu. Stefna E. B. E- 1
þessum málum, upphlaup breskra fiskimanna
vegna fiskinnflutnings til Bretlands °S
ágreiningur þjóðanna um fiskveiðilögsögn.
veiðiréttindi o. s. frv. eykur mjög á óvissuna
varðandi hugsanlega markaðsöflun í Vestur'
116 — Æ GIR