Ægir - 15.04.1975, Side 28
Rækjnveiðar á Arnarfirái,
Isafjarðardjúpi og Húnaflóa
Sjávarútvegsráðuneytið vekur athygli á því, að vegna
þess, að rækjuveiðikvótar á Arnarfirði, Isafjarðardjúpi
og Húnaflóa hafa ekki hækkað undanfarin ár, og ekki
er fyrirsjáanleg breyting þar á, munu þeir aðilar, sem
ekki stunduðu rækjuveiðar á áðurgreindum stöðum,
á síðustu vertíð ekki geta treyst því, að þeir fái rækju-
veiðileyfi á næstu rækjuvertíð. Af ofangreindum
ástæðum eru ekki líkur á því, að rækjuveiðileyfum á
þessum svæðum verði fjölgað frá því sem verið hefur.
Sjávarútvegsráðuneytið
17. apríl 1975.
Rækjuvinnslustöðvar
Sjávarútvegsráðuneytið vekur athygli á því, að sam-
kvæmt lögum um samræmda vinnslu sjávarafla og
veiða, sem háðar eru sérstökum leyfum, er aðilum
skylt að leita leysis sjávarútvegsráðuneytisins, hygg-
ist þeir koma á fót nýjum rækjuvinnslustöðvum eða
auka afkastagetu þeirra, sem fyrir eru.
Sjávarútvegsráðuneytið
17. apríl 1975.