Ægir - 15.06.1975, Side 7
EFNISYFIRLIT:
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
68. ÁRG. 11. TBL. 15. JÚNÍ 1975
Tilkynningaskylda fiskiskipa
Tilkynningaskylda
fiskiskipa 181
•
Framleiðsla sjávaraf-
ui'ða 1. jan. til 31. marz
1975 og 1974 182
•
Útgerð og aflabrögð.
Vertíðarlok 183
Fiskaflinn í janúar
1975 og 1974 192
Ný fiskiskip:
Seifur BA 123 193
Þórsnes II SH 109 194
4 tækjamarkaðnum:
Nýtt asdiktæki 196
ÚTGEFANDI:
fiskifélag íslands
höfn. ingólfsstræti
SÍMl 10500
RITSTJÖRN :
MÁR ELÍSSON (ábm.)
JÓNAS BLÖNDAL
AUGLÝSINGAR:
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GÍSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
ÍSAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
1000 KR. PR. ÁRG.
KEMUR ÚT
hÁLFSMÁNAÐARLEGA
í fróðlegu viðtali, sem Ing-
ólfur Þórðarson, stýrimanna-
skólakennari, átti við sjón-
varpið, rakti hann baráttuna
fyrr því þarfa máli, að fiski-
skipum væri gert að skyldu að
tilkynna hvar þau væru stödd
á einhverjum tilteknum tíma
sólarhringsins. Nefnd hefði
verið skipuð í málið 1963, en
það var þó ekkert raunhæft
aðhafst fyrr en 1967, að síld-
arskipstjórar tóku sig saman
af sjálfsdáðum, að tilkynna
sig einhvern tíma sólarhrings-
ins og tók þá „síldarleitin" við
boðunum.
Ári síðar en þetta var eða
1968 tók svo Slysavarnafélag-
ið að annast reglubundna til-
kynningaskyldu og var varð-
staðan þá 10 klst. á sólarhring
og um þær mundir gaf svo
Eggert Þorsteinsson, sem þá
var sjávarútvegsráðherra, út
reglugerð um tilkynninga-
skyldu fiskiskipa og þar með
var þetta orðin lögboðin
skylda. Síðan 1972 hefur
Slysavarnafélagið haldið uppi
varðstöðu allan sólarhringinn
á tímabilinu 31. okt. til 30.
apríl eða á þeim tíma ársins,
sem sjósókn er mest og erfið-
ust hér við land. Hér er um
mikið starf að ræða, því að
Tilkynningaskyldunni berast
1000—2000 tilkynningar á
sólarhring og verður að halda
spjaldskrá yfir 1000 skip og
báta, en daglega tilkynna sig
300—600 skip þrisvar á sól-
arhring hvert. Skipum ber að
tilkynna brottför úr höfn og
komu til hafnar og auk þess
tvisvar á sólarhring stað og
stefnu á hafi úti.
Því er ekki að leyna að það
vill henda menn að gleyma að
tilkynna sig, og eitthvað mun
vera um skipstjóra, sem ekki
vilja sinna tilkynningaskyld-
unni, en þeir eru sjálfsagt fá-
ir. Ástæðan til vanrækstu til-
kynningar á réttum tíma mun
oftast sú, að skipstjórar á
veiðum eru einir í brúnni og
eiga að sinna allri stjórn
skipsins, og eru auk þess nátt-
úrlega með allan hugann við
veiðarnar.
Það getur engan undrað,
sem þekkir til aðstæðna, þó að
skipstjóra gleymist að til-
kynna sig á réttum tíma, en
honum gefst þó síðar tími til
að leiðrétta þessa vangá og ef
hann ekki gerir það, hlýtur að
vera um fyrrnefndu ástæðuna
að ræða, það er óvilja til að
tilkynna sig.
Það er skýring útaf fyrir
sig að menn, sem eru í fiski
kæri sig ekki um að fá á sig
allan flotann, því að það er
regla, sem er nú dálítið hæp-