Ægir - 15.09.1975, Page 7
EFNISYFIRLIT:
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
68.ÁRG.16TBL. 15. SEPTEMBER 1975
Valmað a£ draumi
Efnisyfirlit:
Vaknað af draumi 273
•
Ásgeir Jakobsson:
Hvalveiðar 274
•
Útgerð og aflabrögð 277
•
Heildaraflinn 1/1—31/8
1975 og 1974 281
•
Fiskaflinn í apríl og
jan—apríl 1975 og 1974 282
•
Úostnaðarsamur öryggis-
búnaður getur verið
tvíeggjaður 284
•
Heglugerð um tollfrjáls-
an farangur farmanna 286
•
Ný fiskiskip:
Vinur SH 140 288
ÚTGEFANDI:
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI
SÍMI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELfSSON (ábm.)
JÓNAS BLÖNDAL
AUGLÝSINGAR;
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GfSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
fSAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
1000 KR. PR. ÁRG.
KEMUR ÚT
HÁLFSMÁNAÐARLEGA
Það var óhjákvæmilegt, að
hin öru togarakaup 1972/73
hlutu að hafa í för með sér
vannýtingu eldri gerða flot-
ans, en það virtist ekki öllum
nægjanlega Ijóst á þeim tíma,
sem örustu kaupin áttu sér
stað. En eins og oft vill verða,
þegar fólk vaknar harkalega
af sætum draumi, þá vaknar
það með ósköpum, og nú er
ekki meir um annað talað en
vannýtingu fiskiflotans.
Það er rétt og fer ekki á
milli mála og verður ekki á
móti mælt hér, að hann er
vannýttur, fiskiflotinn. Hinn
aukni togaraafli hefur dregið
úr bátaaflanum, að því er
virðist, og menn hafa leitað
á nýju og stærri skipin og
erfitt hefur þá reynzt að gera
út stóran hluta af bátaflotan-
um vegna mannaskorts og
fjárskorts vegna minnkandi
afla. En menn skildu nú ekki
láta eins og þetta sé í fyrsta
skipti í íslandssögunni að
fiskifloti okkar sé á einhverj-
um tíma vannýttur. Fiski-
floti, sem býr við mjög árs-
tíðabundnar veiðar og miklar
aflasveiflur frá ári til árs
hlýtur vissulega að verða það.
Hér áður fyrr lá fiskifloti
landsmanna iðulega bundinn
milli aðalvertíðanna.
Og ef menn vilja nú gera
mikið veður út af vannýtingu
fiskiflotans, þá ættu þeir í
leiðinni ,að líta í kringum sig
í þjóðfélaginu. Það er víða
vannýttur véla- og tækjakost-
ur og slíkt er ekki nýtt fyrir-
bæri hjá þjóðum, sem hafa
vélvæðst jafnört og við Is-
lendingar. Það liggja ekki fyr-
ir neinar upplýsingar um nýt-
ingu véla og tækja annarra at-
vinnugreina, svo sem iðnaðar
og landbúnaðar, en hitt sjá all-
ir að hér eru stórar og vel
búnar verksmiðjur, þar sem
aðeins er unnið 8 stundir dag-
lega 5 daga vikunnar og allar
hinar 128 stundirnar standa
allar vélar hljóðar.
Landbúnaður býr, eins og
sjávarútvegur, við misjafna
notkun síns vélakostar eftir
árstíðum, enda nýtist véla-
kostur hans sennilega ekki
skár en sjávarútvegsins. Fisk-
framleiðslan á ekki síður í
vanda með að nýta fyllilega
sinn vélakost af sömu ástæð-
um og fiskiflotinn. Þar er
miðað við að geta tekið við
hámarksafla, eins og fiski-
flotinn er reyndar miðaður
við líka, og afleiðingarnar
fyrir frystihúsinu eru því
þær sömu; mörg frystihús-
anna nýtast ekki fyllilega.
Það er áreiðanlega vandséð
hvar eigi að hefjast handa í
íslenzku þjóðfélagi, þegar um
það er að ræða að fullnýta
allan véla- og tækjakost.