Ægir

Árgangur

Ægir - 15.09.1977, Blaðsíða 7

Ægir - 15.09.1977, Blaðsíða 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 70. ÁRG. 16. TBL. 15. SEPTEMBER 1977 Efnahagslögsaga 200 mílur Ný viðhorf í veiðum, vinnslu og á mörkuðum EFNISYFIRLIT: Efnahagslögsaga 200 mílur 317 • Jónas Blöndal: Pramtíðarhorfur í ljósi breyttrar efnahagslögsögu 318 ^undur Alþjóðahafrann- sóknarráðsins í Reykjavík 323 Tilkynningar frá Beitunefnd 324 Jónas Sveinsson, hagfræðingur: Verðj öfnunarsj óður fiskiðnaðarins 325 Ný fiskiskip: Maí HF 346 330 t&kjamarkaðnum: Vökvakrani frá Fassi 333 Út.fl.uttar sjávarafurðir 1 Júlí og jan.-júlí 1977 og 1976 334 • Loðnuveiðamar 336 ÚTGEFANDI: FISKIFÉLAG ÍSLANDS HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI SÍMI 10500 RITSTJÓRN: MÁR ELÍSSON (ábm.) JÓNAS BLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: G(SLI ÓLAFSSON PRENTUN: (SAFOLD ÁSKRIFTARVERÐ 2000 KR. PR. ARG KEMUR ÚT hAlfsmánaðarlega Eftir að sókn þjóða að út- færslu fiskveiðilögsögu hófst fyrir alvöru en þó einkum eft- ir að sjá tók fyrir árangur þeirrar baráttu, sem nú hefur komið í ljós með útfærslu eða yfirlýsingum nær alira strand- ríkja við norðanvert Atlants- haf og víðar um útfærslu lög- sögunnar í 200 mílur, var víða farið að huga að þeim afleið- ingum, er hljótast kynnu af þeim aðgerðum á framboð og þar af leiðandi markaði sjáv- arafurða. Að þessum málum hefur öðru hvoru verið vikið hér í Ægi á undanförnum árum og á Fiskiþingi. Á síðasta þingi voru lagðar fram ítarlegar skýrslur, sem draga mátti af ályktanir og lærdóm um þær breytingar, er í vændum geta verið. Skýrslur þessar sýndu afla- brögð á helztu miðum Norður- Atlantshafsins og skiptingu aflans á milli fiskveiðiþjóða bæði strandríkja, er hijóta yf- irráð miðanna, og hinna sem lengi hafa sótt um langan veg á þessi mið. Af skýrslunum mátti því álykta hvernig aflahlutföll þjóða kynnu að breytast, ef strandríkin útilokuðu erlendar fiskveiðiþjóðir frá miðum sín- um eða skertu aflamöguleika þeirra verulega. Á öðrum stað hér í blaðinu birtist grein eftir skrifst.stj. Fiskifélagsins, Jónas Blöndal, þar sem nánar er lýst þessum hugsanlegu breytingum og þar sem jafnframt er lýst stefnu þeirri sem mótuð hefur verið eða er í mótun hjá ýms- um strandríkjum um vemdun og nýtingu fiskstofna og um uppbyggingu vinnslukerfis fyr- ir sjávarafurðir. Fer ekki á milli mála, að áhrif þessarar nýju stefnu geta orðið veruleg í helztu mark- aðslöndum okkar fyrir sjávar- afurðir.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.