Ægir - 15.09.1977, Page 10
in fari sér hægt í því að fækka fólki í ljósi
ríkjandi stefnu í byggðamálum. Framkvæmd
kann því að dragast nokkuð á langinn.
Hvað fiskmjölsiðnaðinn snertir er áætlað
að leggja framleiðslugjald á þær verksmiðjur
sem áfram starfa í því skyni að bæta þeim
sem hætta verða það tjón, sem af því leiðir.
Röksemdafærslan, sem að baki liggur, er sú
að þeir sem áfram starfi fái í sinn hlut meira
hráefni við það að einhverjir hætti þegar
heildarframboð er bundið. Að öðru jöfnu ætti
þetta að leiða til bættrar fjárhagsafkomu
þessara fyrirtækja frá því sem óbreytt ástand
hefði í för með sér. Að þessu skoðuðu er eðli-
legt að þessi fyrirtæki leggi a.m.k. hluta af
þessum auknu tekjum fram í því skyni að bæta
tjón þeirra, sem hætta verða.
Ekki verður frekar fjallað um Noreg að
sinni, en væntanlega gefst tækifæri til þess
síðar að gera grein fyrir, hvernig framvind-
an verður.
Efnaliagsbandalagið:
Á vegum Efnahagsbandalagsins hefur verið
unnið að gerð heildaráætlana um fyrirkomu-
lag fiskveiða bandalagsþjóðanna. Eins og fram
hefur komið í fréttum hefur reynst við ramm-
an reip að draga þar sem hagsmunaárekstrar
milli þjóðanna eru. Engu að síður hefur tek-
ist að ná víðtækri samstöðu um einstaka þætti
málsins þó aðrir liggi í láginni um skeið svo
sem það atriði er varðar einkarétt strandríkja
til einkalögsögu.
Augljóst er að Efnahagsbandalagið á við
mikla erfiðleika að etja í sjávarútvegi sínum.
Þær breytingar, sem átt hafa sér stað í lög-
sögumálum hafa öllu meiri áhrif á útveg
bandalagsþjóðanna en eðlilegt má teljast vegna
þess hversu mjög hann hefur treyst á nýtingu
fjarlægra miða. Af þessu leiðir að floti banda-
lagsins hentar illa við hinar nýju aðstæður og
þarf víðtækrar endurskipulagningar við.
í grundvallaratriðum liggja fjögur markmið
að baki þeim tillögum, sem bandalagið hefur
lagt fram:
* Endurreisn ofnýttra stofna og hagkvæm
nýting.
* Nýting vannýttra eða ónýttra stofna til
manneldis.
* Gagnkvæmir samningar um veiðirétt.
* Aðlögun veiði- og vinnslugetu að nýtingar-
möguleikum fiskstofna.
Hvað fyrsta atriðið snertir hefur bandalag-
ið tekið til hendinni. Er bann við síldveiðum
í Norðursjó glöggt dæmi um það. Þá hefui
bandalagið gengið alllangt í þá átt að vernda
aðra stofna. Eru reglur þess til muna strang'
ari en Norðaustur-Atlantshafsnefndin taldi ser
fært að setja fram. I framtíðinni er gert rao
fyrir að bandalagið setji árlega heildarkvóta
á afla úr einstökum fiskstofnum. Þessi kvoti
skal settur í samræmi við bestu nýtingu ein-
stakra stofna. Hugmyndin er sú að þessum
heildarkvóta verði síðan skipt milli aðildai'
landanna.
Með nýtingu stofna, sem verið hafa van-
eða ónýttir, hyggst bandalagið stuðla a
tvennu: í fyrsta lagi að auka þann auðlind3'
sjóð, sem hægt er að ganga í, sem aftur leiðu
til aukinnar atvinnu- og efnahagsstarfsemi a
sviði sjávarútvegs. Kann þetta að draga
sársaukafullum aðgerðum, sem af aðlögun a
breyttu ástandi leiða. I öðru lagi hyggst banda
lagið með þessu auka framboð á fiskafurðum
á mörkuðum bandalagsríkjanna. Eftir því sen'
horfir er vafasamt að bandalagið geti °rðl
sjálfu sér nógt í framleiðslu fiskafurða, ÞeSa
á heildina er litið, nema til komi auknai
veiðar á nýjum tegundum. í áætlun bandalags
ins er gert ráð fyrir víðtækum fjárhagsstuðn
ingi til þeirra sem standa vilja að nýjungun1
á þessu sviði. Ætlast er til að sá fjárhags
stuðningur nái til þátta er varða bæði öflun °°
dreifingu. Þannig mun bandalagið styrkJa
rannsóknir og leit að nýjum veiðisvæðum e
tegundum, þróun veiðitækni og veiðibúnao
og tilraunaveiðar. Jafnframt eru sölu-
vinnsluaðilar hvattir til tilrauna með vinnS
og sölu á nýjum afurðum með fjárhagsstyiKJ
um. ,ð
Einn þáttur þessa máls er að bandalag
hyggst gera átak í því að draga úr nýtjn®
á fiski til mjölvinnslu. Eru ráðagerðir 1 P
átt að hvetja eigendur bræðslna til að bre.' _
verksmiðjum sínum til annarrar vinns
(sennilega til vinnslu jurtaafurða). Með ÞeS,t,
hyggst bandalagið stuðla að hagkvæmari n^.j
ingu ýmissa stofna, sem nú fara mikið
bræðslu en eru góð matvara. Sem dænm
taka síld og makríl. . ,tt
Með gagnkvæmum samningum um veiðu
ætlar bandalagið sér að draga úr áfölu
320 — ÆGIR