Ægir

Árgangur

Ægir - 15.09.1977, Síða 20

Ægir - 15.09.1977, Síða 20
NÝ FISKISKIP Maí HF 346 27. maí s.l. kom skuttogar- inn Maí HF 346 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Hafn- arfjarðar. Maí HF er byggð- ur hjá Storviks Mek. Verksted A/S í Kristiansund í Noregi, nýsmíði nr. 80 hjá stöðinni og er sjöundi skuttogarinn í eigu landsmanna, sem byggður er hjá umræddri stöð. Skuttogari þessi er af svonefndri R-155 A gerð frá Storviks, samsvar- andi og Gullberg NS (sjá 13. tbl. Ægis ’77), en frábrugðinn fyrri skuttogurum af þessari gerð að því leyti til að breidd- in hefur verið aukin um 40 cm, svo og breytt fyrirkomulag, einkum varðandi íbúðir og togþilfar. Maí HF er í eigu Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar og er þetta annar skuttogari fyrir- tækisins, en fyrir er skuttog- arinn Júní GK, skuttogari af stærri gerð, byggður á Spáni árið 1973. Skipstjóri á Maí er Guðmundur Jónsson og 1. vél- stjóri Jóhannes G. Jóhannes- son. Framkvæmdastjóri Bæj- arútgerðarinnar er Guðmund- ur R. Ingvason. Almenn lýsing: Skipið er byggt úr stáli skv. reglum Det Norske Veritas í flokki +1A1, Stern Trawler, Ice C, +MV. Skipið er skut- togari með tveimur þilförum stafna á milli og skutrennu upp á efra þilfar. Undir neðra þilfari er skip- inu skipt með fjórum vatns- þéttum þverskipsþilum í eft- irtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu, geymslur, fiskilest, vélarúm og skutgeyma aftast fyrir fersk- vatn. Undir geymslu og fiski- lest eru botngeymar fyrir brennsluolíu. Fremst á neðra þilfari er stafnhylki og keðjukassar, en þar fyrir aftan íbúðir. Aftan við íbúðir er vinnuþilfar með fiskmóttöku og aftast stýris- vélarrúm fyrir miðju. Til hlið- ar við fiskmóttöku og stýris- vélarrúm er veiðarfæra- geymsla s.b.-megin, en b.b,- megin vélarreisn. Framarlega á efra þilfari er lokaður hvalbakur. Fremst í hvalbak er geymsla en þar fyr- ir aftan íbúðir. Aftan við hvalbak er togþilfarið. Vörpu- renna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist í tvær bobbingarennur, s.b.- og b.b.- rennu, sem ná fram að hval- bak. Aftarlega á togþilfari, ti hliðar við vörpurennu, erU síðuhús (skorsteinshús). Yfir afturbrún skutrennu er tog gálgi, en yfir frambrún skut- rennu er bipodmastur, seU1 gengur niður í síðuhúsin. Af J ast á hvalbaksþilfari er bru (stýrishús) skipsins, sem hvi' ir á um eins meters reisn. afturkanti brúar er mastui' fyrir hífingarblökk. Vélabúnaður: _________ Aðalvél skipsins er Wicb mann, gerð 6AX, sex strokka tvígengisvél með forþjöppu og eftirkælingu, sem skilar 18 hö við 375 sn/mín. Vélin teng ist gegnum kúplingu skip 1 skrúfubúnaði frá Wichmann- Skrúfa skipsins er 4ra bla úr ryðfríu stáli, þvermál 2 ^ mm, og utan um hana skrúfuhringur. , , Framan á aðalvél er deihg1 frá Frank Mohn, af gerðin M4 með úttök fyrir fj°rU_ vökvaþrýstidælur, sem eru f> ir vindur skipsins. Snúning hraði á dælum er 375 sn/rn miðað við 375 sn/mín á aða Mesta lengd....................... 46.45 m Lengd milli lóðlína............... 40.15 m Breidd ............................ 9.40 m Dýpt að efra þilfari .............. 6.50 m Dýpt að neðra þilfari.............. 4.35 m Eiginþyngd ......................... 600 t Særými (djúprista 4.30 m) ......... 930 t Burðargeta (djúprista 4.30 m) .. 330 t Lestarrými ......................... 320 m3 Brennsluolíugevmar ................. 123 m3 Ferskvatnsgeymar..................... 44 m3 Sjókjölfestugeymir .................. 28 m3 Ganghraði (reynzlusigling) .... 13.1 hn Rúmlestatala ....................... 299 brl Skipaskrárnúmer ................... 1484 330 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.