Ægir - 01.01.1981, Blaðsíða 42
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur:
Sjórinn og miðin
Greinaflokkur
r
I. Straumamót og Islandsmið
Formálsorð
í þessum greinaflokki verður reynt að lýsa hin-
um ýmsu miðum, einkum djúpmiðum, í hafinu
umhverfis ísland, eftir því sem efni og ástæður
leyfa. Tilgangurinn er fyrst og fremst að safna
saman tiltækum upplýsingum um þessi mið og
leita nýrra. Jafnframt er leitast við að gera sér
grein fyrir hvað vantar svo skýrari mynd fáist af
staðháttum en nú er hægt að gefa. Verkið er þó
einnig unnið til að reyna að varpa ljósi á hin
náttúrufræðilegu skilyrði á miðunum og til að
fræða almenna lesendur, sérstaklega þá sjómenn
og aðra, sem láta sér annt um sjósókn og sjávarút-
veg.
Hver grein verður væntanlega stutt og eins
tæknileg og unnt er. Höfundi er ljóst að þessi til-
raun til að reyna að lýsa miðunum við landið hlýt-
ur að verða takmörkunum háð og eru lesendur
beðnir velvirðingar á því, að samt skuli lagt í verk-
ið. Mest verður fjallað um eðlisástand sjávar á
miðunum — hita, seltu, sjógerðir, strauma, árs-
tíðabundnar og lengri eða skemmri sveiflur — en
einnig verður eftir atvikum fjallað um lífshætti í
s«- sr ir zr 20* ir i2. r r
1. mynd. Höf og neðansjávarhryggir við
Island. Alþjóðteg eða ensk nöfn eru Irm-
inger Sea, þ.e. Grœnlandshaf og Den-
mark Strail, þ.e. Grænlandssund. Önnur
nöfn svo sem Islandshaf, Noregshaf, Is-
landsdjúp og nöfn hryggja eru sain-
kvæinl haffrœðilegri hefð og koriuin
Sjóinælinga íslands. (Sv. A.M.J.
Noinenclature of seas and submarine
ridges in Icelandic waters.
30 — ÆGIR