Ægir - 01.02.1987, Page 20
76
ÆGIR
2/87
vorin er stundum eins og ræma í
pólstraumnum meðfram austur-
strönd Grænlands, en stundum
þekur það hafið hálfa leið til
Noregs. Og þessi misheiti sjór
leitar suður eftir, hratt við land-
grunnsbrún Grænlands, en
hægar austur við Jan Mayen.
Straumflöskur eru um það bil
hálft ár að berast þaðan til
Islands, ef þær ná hingað á annað
borð.
Eftir þennan inngang kemur
það lesandanum varla á óvart, að
hitinn á jan Mayen fyrri hluta
vetrar muni vera sú vísbending,
sem ég tel vænlega um hitann á
nýja árinu. Það er einmitt hitinn í
ágúst-janúar á Jan Mayen, sem
hefur gefist best til að spá hafís
komandi árs hér við land. Og þá
skiptir ekki miklu máli þó að
komið sé einn mánuð fram á árið
þegar spáin er gefin út. Það er
Gervitunglamynd, tekinvorið 1979 úru.þ.b. 900 km hæð. Eins og sést af myndinni er hafísjaðarinn nálægt Norðurlandi■