Ægir - 01.02.1987, Blaðsíða 26
82
ÆGIR
2/87
SKIPSTAPAR OG SLYSFARIR
Arnar ÍS 125
ferst við Selatanga
austan við Grindavík
Jón Eðvaldsson
Jóhannes Pálsson
Arnar ÍS 125 fór í línuróður frá
Sandgerði um miðnætti aðfarar-
nótt sunnudagsins 23. nóvember
1986.
Skipverjar, er voru tveir, töluðu
við sjómenn á öðrum bátum um
nóttina, síðast klukkan rúmlega 8
á laugardagsmorguninn. Þeir
voru þá skammt frá Selatöngum
á sunnanverðu Reykjanesi.
Annar sjómannanna var á svo-
kallaðri baujuvakt og er ekki
vitað annað en að þá hafi allt
verið í lagi.
Daginn eftir, sunnudaginn 23.
nóvember, gengu tvær rjúpna-
skyttur frá Hafnarfirði fram á
björgunarbát í fjörunni við Sela-
tanga og var „Arnar" strandaður
á grynningum um 100 metra frá
björgunarbátnum. Kom í Ijós að
„Arnar" hafði farið upp á grynn-
ingar og laskast töluvert á þeim
og stöðvast um 40-50 metra frá
fjöruborðinu. „Arnar" var þá
þegar mikið brotinn, stjórnborðs-
síðan var t.d. alveg farin úr
honum ásamt hálfu dekkinu og
stórt gat vareinnigá bakborðssíð-
unni. Björgunarbátur „Arnars"
var uppblásinn en mannlaus.
Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík var kölluð út til leitar
og þyrla Landhelgisgæslunnar
TF-Sif kom einnig fljótlega á
vettvang. Skipuleg leit hófstsíðan
mánudaginn 24. nóvember, en
hún bar engan árangur.
Með „Arnari" fórust:
Jón Eðvaldsson, ski pstjóro
Suðurgötu 28, Sandgerði, fæddr,r
20. janúar 1933, kvæntur
lætur eftir sig þrjú uppkomin börH/
og Jóhannes Pálsson, Suðnt'
götu 16, Sandgerði, fæddur 31-
maí 1952, kvæntur og lætur eft|r
sig þrjú ung börn.
ArnaríS 125.