Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1987, Síða 30

Ægir - 01.02.1987, Síða 30
86 ÆGIR 2/87 Heiðursfélagi Nýlega var tilkynnt að Dr. Lúðvík Kristjánsson sagnfræðingur hefði ver- ið kjörinn heiðursfé- lagi Sagnfræðingafélags íslands, en Lúðvík var um árabil ritstjóri Ægis og var kjörinn heiðurs- félagi Fiskifélags íslands árið 1981. Er hann jafnframt fyrsti heiðursfélagi Sagnfræð- ingafélagsins. Eins og segir á heiðursskjali, öðlast hann þennan heiður„fyrirframlag hanstil íslenskrar sagnfræði og þó einkum rit hans „íslenska sjávar- hætti". „Flaggskip" íslenska loðnuflotans Hinn 6. febrúar s.l. kom til landsins „flaggskip" íslenska loðnuflota'ns, Jón Finnsson RE 506. Skipið var byggt í Stettin í Póllandi og er 53,6 metrar að lengd og 11 metra breitt. Gert er ráð fyrir að burðargeta þess sé um 1200- 1300 lestir af loðnu. Á heimleið frá Póllandi kom skipið við í Solvika og tók þar um borð hjá „Mogenot" loðnunót, sem er ein sú stærsta er þekkist hér eða 92 faðma djúp og 300 faðma löng. Eigandi skipsins er Gísli Jóhannesson, Reykjavík. Skipið hélt til loðnuveiða þann 8. febr. og miðviku- daginn 11. febr. kom það með fullfermi, 1300 tonn, til Seyðisfjarðar. Síðar verður gerð frekari grein fyrir þessu glæsi- lega skipi á síðum ÆGIS. Noregur í blaði norsku fiskimálastjórnarinnar „Fiskets gang" um fiskveiðar Norðmanna kemur m.a. eftir- farandi fram um fiskveiðar Norðmanna á sfðast- liðnu ári. Aflamagn 1986 (tonn) Síld 336.600 Makríll ........................... 143.300 Loðna ............................. 272.400 Spærlingur ......................... 67.900 Áll ................................ 87.000 Kolmunni 285.300 Þorskur, annar botnf............... 544.259 Skelfiskur (rækja, humar, krabbi) . 58.900 Heildarafli Norðmanna 1986 minnkaði ú[ 2.204.627 tonnum í 1.960.759 tonn, en verðmæti aflans jókst um 8%. Tölur þessar eru bráðabirgða- tölur. Aflinn er sá minnsti síðan 1964. Aflasamdrátt- urinn er aðallega vegna minnkandi loðnuveiða, en loðnuaflinn reyndist 370.000 tonnum minni en árið áður. Samdráttur hefur og orðið í ufsaafla (38%) spærlingsafla (40%). Einnig varð samdráttur í rækju- og brislingsafla og í veiðum á sandsílum. Skipting aflaverðmætis áranna 1983-1986 var sem hér segir: 1983 7 984 7 985 1986 % % % Síldar- og loðnuafurðir 31 29 24 20 Þorskur, annar botnfiskur 50 50 53 58 Skelfiskur 16 18 19 18 Annað 3 3 4 4^ Alls . 100 100 100 100 Færeyjar í færeyska blaðinu „Sosialurin" er greint frá upp' setningu á verksmiðju sem framleiðir„Surimi" aðal' lega úr kolmunna fyrir Japansmarkað. Japanskir sér- fræðingar er unnið hafa við að setja upp verksmiðj11 í færeysku frystihúsi telja að hráefni úr kolmunna se mun betra en hráefni úr Alaska-ufsa. Noregur - Sovétríkin \ 1. tbl. „Fishing News International" 1987 er skýrt frá samkomulagi Norðmanna og Sovétmanria um auknar veiðar þessara þjóða á þorski og ýsu a árinu 1987.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.