Ægir - 01.02.1987, Page 38
94
ÆGIR
2/87
munur á skipshraða miðað við
botn og við sjávarstraum.
Vitneskja um sjávarfallastraum
er verðmæt við allar fiskveiðarog
sjávarfallarannsóknir.
Háþróuð tækni og aflmiklir
sendar tryggja öruggar upplýs-
ingar allt að 600 m dýpi og
straummælingar að 200 m (allt
eftir sjávaraðstæðum). Sjávarföll
breyta yfirleitt hraða sínum og
stefnu. Ef straummælirinn mældi
þá einungis stöðugt er hætta á að
mönnum sjáist yfir helstu stefnur
þeirra. Nákvæm mæling á hraða
skipsins hjálpar einnig til við
skipsstjórnun.
Hátíðniboð eru send í
þröngum geislum í þrjár áttir með
120° horni hver á annan og í
vissan halla hver frá öðrum og
útilokar þetta áhrif frá öldugangi.
Upplýsingar um hraða skips er
hægt að nota við gervitunglamót-
takara (SAT/NAV), raunstefnu
radar (true-motion), og hring-
sónar (CSH-20) og auka þær marg-
falt nákvæmni þessara tækja.
Upplýsingar um stefnur sjávar-
falla er hægt að staðfesta með því
að tengja við gýró.
14" litskjárinn gefur ýmsa
möguleika á upplýsingum.
1. Skipshraði sýndur með þrem
línum (vectorum), langskips
(gulur), til hliðar (gulur) og
hléborða (grænn).
2. Línur (vectorar) er sýna
straumhraða og stefnur á
þrem mismunandi dýpum.
Mismunandi litir auðkenna
hverja dýpt, (gulur, fjólublár
og blár) og er sama auðkenn-
ing notuð í dýpis-súlurit.
3. Straumar og sjávardýpt síð-
ustu 6 klst. (skráð á 2 mín.
fresti.) og síðustu 30 mín.
(skráðá 15 sek. fresti).
4. Skráning stefnu skipsins með
dýpt og stefnu straums sýnd
með völdu millibili sem línur
á leið skipsins.
A öllum skjámyndunum sýnir
efri hluti skjásins hraða skipsins
og stefnu, stefnu og dýpt sjávar-
strauma á þrem mismunandi
dýpum og efri og neðri mörk á
hraðastillingum í tölum.
Allar frekari upplýsingar um
tækið gefur Skiparadíó h.f.,
Reykjavík, sem er umboðsaðili
Furuno á íslandi.
- Fréttatilkynning.
FISKIDÆLUR
SLÓGDÆLUR
• FLYGT dælir auðveldlega vökva
blönduðum fiskúrgangi og slógi.
• FLYGT hefur innbyggðan hníf sem
sker í sundur fiskúrganginn.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER