Ægir - 01.02.1987, Page 40
96
ÆGIR
2/87
Andrés fékk SILFURLOÐNU
Andrés Finnbogason fram-
kvæmdastjóri Loðnunefndar lét
af störfum um síðustu áramót.
Andrés hóf störf hjá Loðnunefnd
árið 1973, en þá voru sett lög um
löndun á loðnu, og nýskipuð
loðnunefnd opnaði sérstaka skrif-
stofu að Tjarnargötu 4, Reykja-
vík.
Alla tíð síðan hefur Andrés
stjórnað þar af miklum skörung-
skap og við miklar vinsældir allra
loðnusjómanna. Ogtil marks um
vinsældir Andrésar í starfi, þá
héldu loðnuskipstjórar honum
veglegt kveðjuhóf í veitingarhús-
inu Skútanum í Hafnarfirði.
Þar var hann heiðraður fyrir
farsælt starf og að skilnaði færður
minjagripur „SILFURLOÐNA"
sérstaklega hönnuð af þessu
tilefni.
Fiskifélag íslands hefur átt
mikið og gott samstarf við Andrés
öll þessi árogsendum við honum
bestu kveðjur og þakkir fyir
ánægjulegt samstarf.
Við starfi Andrésar hjá Loðnu-
nefnd tekur Ástráður Ingvarssom
Ástráður starfaði áður í veiðieftir-
liti sjávarútvegsráðuneytisins.
dælur
Þær sem aðrir byggja
Vatnsþrýstikerfi Lensidælur
Vökvadælur
sem bregðast ekki.
Hentug á skipa- og bátaflotann,
útihús og nánast hvar sem er.
Halda þrýstingi á sjálfvirkan hátt.
Vegna einfaldleika sins og traustrar
byggingar þá bregðast þau ekki.
dæla öllu.
Öflugar lensidælur sem henta bæði
stórum og smáum iðnaði. Taka í sig
allskonar rusl. Einfaldar og hannaðar
af hugviti eins og allar dælur frá
MONO. Þær dæla öllu þessar.
henta allsstaðar.
Einfaldar og hljóðlátar vökvadaelur
sem eru þekktar fyrir endingu sína.
Litlar og liprar dælur sem henta alls-
staðar.
MONO
EINFALDAR
FJÖLHÆFAR
TRAUSTAR
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
HAMARHF
Grandagarði11 Sími 91-22123.