Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1987, Side 50

Ægir - 01.02.1987, Side 50
106 ÆGIR 2/87 Ægir 80 ára í júlí 1905 kom út fyrsta tölu- blað tímaritsins „Ægis" og var Matthías Þórðarson frá Móum rit- stjóri og útgefandi ritsins. Árið 1909 varð hlé á útkomu blaðsins fram til ársins 1912 að Fiskifélag íslands tók við útgáfu tímaritsins undir sömu ritstjórn og áður. Síðan hefur Fiskifélagið gefið tímaritið út. Með janúar- blaði 1914 lætur Matthías Þórð- arson af ritstjórn Ægis, en við tekur Sveinbjörn Egilsson. Skrifar hann ávarpsorð til lesenda og þakkar Matthíasi fyrir frábæran dugnað við að halda út blaðinu. Um ritstjórn Sveinbjörns segir Guðbrandur Jónsson í afmælisriti um Fiskifélag íslands 1911 -36: í höndum hans (þ.e. Sveinbjörns) breyttist blaðið allmjög, en Sveinbjörn hefir ágæta blaða- mannshæfileika og lagði hann nú fyrst og fremst áherslu á, að blaðið væri skemmtilegt. í ársbyrjun 1937 tekur síðan Lúðvík Kristjánsson við ritstjórn og var allt til loka ársins 1954 að Davíð Ólafsson tók að sér rit- stjórnina. Már Elísson varð þessu næst ritstjóri árið 1967 og varð síðar ásamt Jónasi Blöndal skrif- stofustjóra ritstjóri allt til ársins 1983 er Þorsteinn Gíslason varð fiskimálastjóri og ritstjóri ásamt Jónasi Blöndal. Fyrr, eða á árinu 1978, hafði verið ráðinn ritstjórn- arfulltrúi við blaðið, Birgir FJer- mannsson, sem svo varð ritstjóri árið 1985. Birgir hætti störfum 1. febrúar síðastliðinn, en við tók til bráðabirgða Friðrik Friðriks- son. Óhjákvæmilegt er, að blaðið hafi tekið breytingum frá því ári sem blaðið leit fyrst dagsins Ijós. En megintilgangur þess er eftir sem áður að birta aflaskýrslur og gegna þjónustuhlutverki sínu við sjávarútveginn. Hér á eftir birtum við til fróð- leiks og skemmtunar 1. tölublað Ægis í upprunalegri mynd sinni. Matthías Þórðarson, fyrsti útgefandi og ritstjóri Ægis. MÁNAÐARRIT UM FISKIVBIDAR 0G UARMENSKU AHÍiAMGUH RITSTJÓRI MATTHÍAS ÞÓRDARSON W K Y K .I A V í K pHKNTS.MiaiAN (ii ti:n»si:i 1ÍMIT»— 11HM* Forsíða I. tölublaðs Ægis.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.