Ægir - 01.02.1987, Qupperneq 58
114 ÆGIR 2/«7
8 ÆGIR.
hingað til verið mjög lítið notað af inn-
byggendunnm, bæði af framkvæmdarleýsi
og vöntun á vinnukrafti til að stunda
veiðarnar.
Eins og fyr er frá sagt hafa islend-
ingar nú ráðið til sín marga norska fiski-
menn, sem jafnframt því sem þeir stunda
róðra eiga að kenna þeim að fiska bæði
skynsamlega og á réttan liátt. Fiski-
mennirnir fara til íslands í næstu viku.
Fiskitiminn er ákveðinn 4 mánuðir,
og eru skilmálarnir, sem þeir eru ráðnir
fyrir mjög góðir«.
★ ★
Ath. Þessir menn sem hér um ræðir
eru þeir, sem hr. kaupm. Þoi'st. Jóns-
son réð í Lofoten i vetur eftir leiðbein-
ingu og upplýsingum minum, og er kaup
þeirra ákveðið um 25 kr. um mánuðinn
og V2 hlutur. Þeir komu lil íslands
snemma i júni, og margir þeirra hafa i
hyggju að búsetja sig á Austfjörðum til
frambúðar. Ábyrgðarm.
Frosinn fiskur lífgaður aftur.
(Eftir Tlie Pacilic Fisherman.)
Af því eftirsókn eftír lifandi fiski
er jafnan meiri á heimsmarkaðinum en
á dauðum fiski og lumn þar að auki er
i hærra verði, þá hafa menn í Ameriku
fundið það ráð að frysta lifandi lisk og
geyma hann svoleiðis í lengri tíma, og
senda á ýmsa staði upp í landið, heíir
hann svo við það að vera þýddur í
sjó eða köldu vatni smám saman lifnað og
verið seldur lifandi á torgum og fiiski-
söluhúsum.
Síldarveiðin í Norðursjónum.
Síðastliðið ár veiddnst 27^ milliónir
tunnur af síld í Norðursjónum, þar af
fiskuðu Skotar helminginn og Hollending-
ar rúmar 650,000 tn.
Fiskiveiðar Norðmanna.
1 il 20. mai í ár liafa Norðmenn aílað
398/io millión íiska. 1904 fiskaðist til
sama tima 428/io millión. 1903 423/io
og 1902 404/io millión. Þannig hafa Norð-
menn liskað talsverl minna en undanfarin
ár, attur á móli hefir fiskurinn verið
stærri og feitari.
Þilskip við Faxaflóa
hafa í vortúrnum aflað fremur vel,
talan fremur há, og fiskurinn með værista
móti, hæðsta lala er hjá »Guðrúni frá
Gufunesi« 32,000 fiskjar og fleiri eru með
frá 25—30,000. — Úr Reykjavik og Sel-
tjarnarnesi gengu í vor tií fiskjar 44 skip,
þau liafa aflað til samans 802,000 eða að
meðaltali rúm 18,000 iivert, en það
mun vera hér um bil 1000 fiskar á mann,
og er það góður afli þegar tekið er tillit
til hvað íiskurinn er vænn og verðiðhátt
í fyrra fiskuðu 40 skip lijeðan úr bæn-
um og af Seltjarnarnesi 670,000 fiskjar á
vorvertiðinni.
Einn botnvörpung
enn þá, liafa nokkrir menn hér í
Reykjavík keypt sér, og skal nú þegar
byrja fiskveiðar. Skipstjórinn er íslenzk-
ur Árni Eyjólfsson að nafni, og hefir i
nokkur ár siglt sem skipstjóri með botn-
vörpuskipi frá Englandi, og sýnt mjög
mikinn dugnað.
Heyrst hefir að margir hér i Reykja-
vík og nágrenninu hefðu i hyggju að
selja þilskip sín ef kostur er og kaupa
aftur botnvörpuskip, og sýnir þetta virð-
ingáverðan áhuga fyrir að fyígja með
tímanum i fiskiveiðamálunum.
Um 50 síldveiðaskip
frá Svíþjóð er búist við að stundi
síldarveiði við Norðurland í sumar oger
það töluverð viðbot við norska llotann.
Brýn nauðsyn ber til að alvarleg gang-
skör sje gjörð svo fljótt sem auðið er að
því að vernda hagsmuni íslands, og
stemma stigu við ylirtroðslum þessara
útlendinga á réttindum landsmanna.
Nú pegar verið er aö enda viö að setja ritið,
fréttist pað að yíirforingi »Heklu«, Kapt. Schack,
lætur af yfirstjórn og Capt. Tuxen tekur við.
Fáir menn hafa á jafnstuttum tima unnið sér
jafn einróma hylli, og pað að verðleikum, sem
Capt. Schack, og óskum vér iionum allra heilla
um leið og vér hjóðum hinn velkominn.
í næsta blaði
tökum vér meðal annars, lil íhug-
unar hvað gera beri fyrir sjávarútveginn
í heild sinni.
Prentsmiðjan Gutenberg.