Ægir - 01.03.1991, Blaðsíða 15
3/91
ÆGIR
123
stöðug undanfarin ár, þetta
-.500-3.000 tonn á ári. Allar
upplýsingar sem borist hafa frá
Peim nú nýlega benda til þess að
ún verði ekki minni á komandi
ari.
^igería
Framleiðsla á skreið fyrir
Pennan áður mikilvæga markað er
ne næstum engin, nema á þurrkuð-
Urn hausum.
hó að efnahagsástandið í Nig-
er'u hafi batnað mikið að undan-
0rnu, þýðir það ekki að efna-
I a8ur almennings hafi mikið
reyst. Allur innflutningur er mjög
ýr vegna þess hve Nairan (gjald-
m'ðill Nigeríu) hefur fallið, inn-
^ utningstollar háir og stjórnvöld
reVna að gera innflytjendum allt
e,ns erfitt fyrir og þeir mögulega
§eta, en þó án þess að setja inn-
utningsbönn. Allt er þetta gert til
a sPara gjaldeyri og til að auka
'nnanlandsframleiðsluna. Nigeríu-
''-----------------------------
menn hafa því enga möguleika á
að kaupa fisk á því háa verði sem
hægt er að fá í Evrópu, og hefur
því framleiðsla á skreið fyrir þá
nær alveg lagst af. Þessi áður
mikilvægi markaður, sem keypti
400 þúsund pakka árið 1981, fékk
nú aðeins 11 þúsund pakka.
í staðinn hafa þeir aukið kaup á
hertum hausum og varð enn tals-
verð aukning á þeirri franileiðslu
eða um 25% frá árinu á undan.
Framleiðslan hefði orðið enn
meiri ef ekki hefði komið til að
bannað var að flytja inn fiskafurðir
í ársbyrjun og var því ekki aflétt
fyrr en kom fram í mars. Var þvf-
svo til ekkert hengt upp hér í jan.-
febr. því menn vissu ekki hve
lengi bannið mundi standa. Þrátt
fyrir að afskipanir hæfust ekki að
ráði fyrr en komið var fram í apríl
voru hausarnir að mestu búnir
þegar kom fram í nóvember, og
hefur verið stanslaus eftirspurn
eftir þeim undanfarið.
Þrátt fyrir þessa miklu eftirspurn
hefur verð ekki hækkað að ráði,
aðeins hefur tekist að ná aftur því
verði sem fékkst fyrir 3-4 árum og
ekki er búist við að það hækki
miklu meira á næstunni. En það er
líka mikils virði að geta afskipað
hausunum næstum jafnóðum og
þeir eru tilbúnir til útflutnings.
Birgðir skreiðar
og hausa í árslok
Eins og áður kom fram voru
óseldir 2.000-4.000 pakkar af
Ítalíuskreið frá árinu 1989 og um
það bil 1.000—2.000 pakkar frá
árinu 1990.
Svo til ekkert var til af Nigeríu-
skreið og aðeins hausar sem ekki
voru fullþurrir, en sú framleiðsla
er í lágmarki á þessum árstíma.
Höfundur er framkvæmdastjóri Sam-
lags skreiðaríramleiðenda.
Utgerðarmenn og skipstjórar
- -:,p' : •,.if4:>4,r2X'4t*
Dráttarbraut fyrir allt aö 450 þungatonn.
Pantið pláss tímanlega.
Botnhreinsun og málun.
Oll almenn viðhaldsvinna ásamt smíði yfirbygginga og innréttinga.
Leitið upplýsinga og tilboða.
Skipasmíðastöðin Dröfn h/f
Strandgata 75, 220 Hafnarfirði. Símar: 50393 - 50483