Ægir - 01.05.1991, Page 18
242
ÆGIR
5/91
Útflutningur sjávarafurda
Útflutningur sjávarafurða ársins
1990 var 4.5% minni að magni,
en árið áður. Alls nam útflutning-
urinn rúmlega 623 þúsund tonn-
um á móti liðlega 652 þúsund
tonnum á árinu 1989. Mestur var
sjávarafurðaútflutningurinn árið
1986, þegar flutt voru út 718.727
tonn af sjávarfangi, en árið 1990
var sjötta í röðinni að magni frá
upphafi.
Birgðir sjávarafurða minnkuðu
annað árið í röð og voru birgðir,
taldar á nafnverði, tveim millj-
örðum króna minni um síðustu
áramót en ári áður, eða um þriðj-
ungi minni. Meðalverð hækkaði
um 16.5% á árinu, mælt í SDR, og
hafa því birgðir minnkað um tals-
vert meira en nemur þriðjungi í
upphafi árs 1990. Ekki búa allir
framleiðendur sjávarafurða við
umframeftirspurn. Á því er t.d. ein
mikilvæg undantekning, en eins
og flestum er kunnugt varð um-
talsverð lækkun verðs á rækju,
vegna aukins framboðs annarra,
sem leiddi til nokkurrar birgða-
söfnunar á þessari tegund sjáv-
arafurða.
Verð margra tegunda útfluttra
sjávarafurða hækkaði mikið á
árinu 1990 og var meðalhækkun
milli ára tæp 11 % mælt í SDR. Ef
litið er framhjá breyttri fram-
leiðslusamsetningu, þá kemur í
Ijós að verðhækkun á útflutt kíló
sjávarafurða var u.þ.b. 18% í
erlendri mynt. Jókst því verðmæti
útfluttra sjávarafurða á árinu 1990
um 11.4% í erlendri mynt frá fyrra
ári, þrátt fyrir 4.5% minna magn.
Verðmæti útfluttra sjávarafurða
1990 var 1.242 milljónir dollarar,
sem er hækkun í dollurum um tæp
22% frá árinu áður. Mælt í SDR
nam útflutningurinn rúmum 915
milljónum, en var liðlega 797
milljónir SDR á árinu 1989. Áður
hafði útflutningurinn, mældur á
þessa mælikvarða, verið mestur
árið 1987, 1073 milljónir dollara
og 838 milljónir SDR eininga.
Á næstu þlaðsíðum er rakin
þróun útflutningsverðmæta í töl-
um og línuritum. Grunnur þessara
upplýsinga er fenginn frá Hagstofu
íslands og er rétt að vekja athygli
lesenda á því að samtölum Hag-
stofunnar um útflutning einstakra
atvinnugreina ber ekki fullkom-
lega saman við þær tölur sem fara
hér á eftir. Stafar mismunurinn
fyrst og fremst af annarri flokkun
útflutningsafurða hjá Fiskifélag-
inu, en Hagstofunni. T.a.m. eru
niðursoðnar sjávarafurðir taldar
hjá Fiskifélaginu meðal annarra
útfluttra sjávarafurða, en Hag-
stofan flokkar útfluttar niðursuðu-
vörur meðal iðnvarnings. Sarna
gildir um nýjan flokk sem Hag'
stofan tók upp á síðasta ári, en þa^
er fiskfóður, sem áður var talio
með annarri fiskmjölsframleiðslU/
en er nú flokkað hjá Hagstofunm
meðal útflutts iðnvarnings.
Línuritið hér á síðunni 5ýn|r
þróun útflutningsverðmæta a
tímabilinu 1979-1990, mælt 1
dollurum og SDR. ÚtflutningS'
verðmætin hafa aukist um rú'11
107% mæld í dollurum á þessU
tímabili. Mælt í SDR er hækkunin
aðeins minni, eða liðlega 97 °
hækkun. Þetta línurit gefur a
sjálfsögðu ekki kórrétta mynd 3
þróun raunverðmæta útfl uttra
sjávarafurða. Mismunandi geng'5
þróun gjaldmiðla og þróun inn
flutningsverðs ræður miklu upl
kaupmátt þess gjaldeyris sem sjav
arútvegurinn skapar þjóðinni- 1
Vísitölur útflutningsverömætis
(1979 = 100)
250
200
150
100 -
50
0
1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
I Dollarar
j SDR